Hann eyddi allri símnúmeraskránni

Guđmar Magnasson steypubílstjóri hefur kćrt lögreglumann fyrir ađ hafa eytt gögnum úr síma sínum.

„Ég var bara ţarna ađ tala viđ hann ţegar hann rífur af mér símann og fer ađ fikta í honum. Ég reyndi ađ ná símanum aftur og rifnađi nýja LaCoste treyjan mín viđ ţau átök. Ađ lokum, ţegar ég fékk símann aftur, var símnúmeraskráin tóm“ segir Guđmar. „Ţegar ég uppgötvađi ţetta fór ég fram á ađ hann gćfi mér upp númeriđ sitt, en hann neitađi mér um ţađ“ bćtir Guđmar viđ og ţykir heldur hart hafa veriđ gengiđ á rétt sinn. „Mér ţykir ansi hart ađ vera búinn ađ glata öllum mínum númerum, hvort heldur er númeriđ hennar mömmu, hennar Lóló á Laufásveginum, eđa á Goldfinger. Númer sem ég ţarf oft ađ hringja í.“

Bergmálstíđindi leituđu svara hjá lögreglustjóra höfuđborgarsvćđisins, sem ekki vildi tjá sig um máliđ.

Heimildarmađur innan lögreglunnar, sem ekki vill láta nafn síns getiđ segir ađ máliđ sé persónulegt. Ţeir, Guđmar og umrćddur lögreglumađur, hafi veriđ ađ deita á laun um hríđ, en lögreglumađurinn hafi viljađ slíta sambandinu. Hann hafi beđiđ Guđmar ađ eyđa símanúmeri sínu úr síma sínum, en Guđmar hafi ţvertekiđ fyrir ţađ. Guđmar hafi veriđ ađ senda sms allar nćtur og kona lögreglumannsins hafi veriđ hćtt ađ lítast á blikuna. Ţví hafi lögreglumađurinn viljađ enda ţetta. Ţegar Guđmar hafi ekki viljađ eyđa út númerinu hafi lögreglumađurinn ekki séđ annan kost en ađ taka til sinna ráđa og eyđa númerinu út sjálfur. Ţađ hafi veriđ fyrir slysni ađ allri símnúmeraskránni hafi veriđ eytt.

Er Bergmálstíđindi báru ofangreindar upplýsingar undir Guđmar vildi hann ekki tjá sig frekar um máliđ.


mbl.is Lögreglan eyddi gögnum af farsíma
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guđmundur Ásgeirsson

Haha! góđur...

Guđmundur Ásgeirsson, 26.4.2008 kl. 04:53

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband