Dæmdur til stjaksetningar og reytingar

Héraðsdómur Bakkatjarnar dæmdi í dag Jónatan Livingstone máv til stjaksetningar og reytingar fyrir yfirgang, hreiðurbrot og fósturát.

Jónatan réðist á heimili þeirra Svans og Svanhildar Flyvering. Hrakti þau úr hreiðri sínu og át fimm ófædd börn þeirra.

Í dómnum segir m.a. „Með verknaðinum hefur ákærði sýnt einbeyttan brotavilja og árásin var mjög óvægin.“

Jónatan mun ekki hafa ákveðið enn hvort dómnum verði áfrýjað til Eftirréttar.


mbl.is Harmleikur á Bakkatjörn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tiger

   Hahaha ... jamm sko það er vandlifað með eggjum. Væri alveg til í að vera eins og storkurinn ef ég yrði að vera fugl - mar bara fær einhvern veginn afkvæmi í pakkningum og hendir þeim bara í mannfólkið - svo ala þau afkvæmin upp fyrir mann. Knús í kvöldið þitt kæri boxer.

Tiger, 15.5.2008 kl. 19:21

2 identicon

Fólk vill skjóta máva af því að þeir eru svo ljótir og éta egg og unga annarra fugla,

Hvað vilja menn þá gera við mannfólkið, ljótt og slátrar og pyntar alla, dýr og manneskjur, ungviði jafnt sem aldna.

ha ha (IP-tala skráð) 15.5.2008 kl. 21:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband