Ísland taki upp Verkó sem sinn gjaldmiðil

Raddir innan Verkaýðsforystunnar telja farsælast fyrir Íslendinga að taka upp gjaldmiðilinn Verkó. Verkó var lengi vel útbreiddur í A-Evrópu, en hefur hin síðari ár vikið fyrir Evru. Verkó er fasttengdur rússnesku Rúblunni.

Angantýr Engilberts, talsmaður Samtaka alþýðunnar, telur rétta skrefið að taka upp Verkó.

„Verkó hefur sýnt styrk sinn í femmtíu ár“ segir Angantýr. „Verkó var tekin upp í Rússíá í tilefni Sputniks og náði mikilli útbreiðslu eftir það. T.d í Tékkóslóvakíu“ bætir Angantýr við.

Aðspurður um hvort ekki sé tímanna tákn að veðja heldur á Evru en Verkó, nú árið 2008, segir Angantýr Evruna vera húmbúkk og nýjabrum, sem muni deyja innan fárra ára.

„Ég er skoðanabróðir Geirs og Björns í þeim efnum. Evran er handónýt. Ef ekki Verkó, þá Escudos.“

Er blaðamaður benti á að Portúgalir hefðu lagt niður Escudos við upptöku Evrunnar, árið 2002. Sagðist Angantýr ekki taka þátt í svona rugli.

„Talaðu bara við mig eftir helgi, þegar runnið er af þér“ sagði Angantýr og neitar að tjá sig frekar um málið.


mbl.is Upptaka evru ekki möguleg án ESB-aðildar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nú þá er svo til þess að gera lítið notaður Escudos á lausu, mætti kíkja á það?

Hver veit nema þeir eigi líka lítið notað Velferðarkerfi þarna fyrir sunnan?

Ofurskutlukveðja

Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 14.7.2008 kl. 20:00

2 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

veit ekki. held að Portúgalarnir séu meira þekktir fyrir útferð en velferð

Brjánn Guðjónsson, 14.7.2008 kl. 20:53

3 identicon

já, líklega rétt hjá þér- en hei það mátti reyna!

Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 14.7.2008 kl. 21:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband