Hroðbjóður hverfur

Mér gæti ekki verið meira sama um hvort McHaralds sé að hætta eða ekki. Hef gert tvær tilraunir á ævinni til að koma niður McHaralds borgara og í hvorugt skiptið tókst mér að torga borgaranum. Þó eru þetta ör-borgarar sem hægt væri að innbyrða í tveimur bitum. Svo litlir og tíkarlegir eru þeir. Ég hef smakkað margann tómatsósuborgarann um ævina, en McHaralds er einn sá mesti hroðbjóður sem inn fyrir mínar varir hefur komist. Bið ég þá heldur um súra lundabagga.

Nei. Þegar mig langar í góðan hamborgara fer ég á Stælinn.

Ég hugsa ég komi jafnvel til með að tékka á Metró borgara eftir að McHaralds verður allur. Þeir geta alla vega ekki orðið verri. Vonandi þeir munu bjóða upp á skárra en kjöt af sjálfdauðu, vonda fluorcent-appelsínugula ostinn, ógeðslegu súru gúkurnar og amerísku Vals-tómatssósuna, í brauðinu sem lítur út fyrir að vera úr plasti.


mbl.is McDonald's hættir - Metro tekur við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hafþór Þórarinsson

Fullkomlega réttmæt skoðun, en breytir því ekki að þetta hafa verið mest seldu borgarar síðustu árin....þannig að einhverjir hljóta að vera ósammála þér....

Hafþór Þórarinsson, 27.10.2009 kl. 16:29

2 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

vissulega. það hafa ekki allir jafn sallafínan smekk og ég

Brjánn Guðjónsson, 27.10.2009 kl. 17:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband