Snillingar

Það semur enginn svona tónverk nema snillingur og að heyra það túlkað af öðrum snillingi gerir það ómetanlegt.

Svyatoslav Richter leikur ballöðu nr. 1, op. 23, eftir François Chopin. Fyrir þá sem hafa áhuga, er hún í G moll.

Karl faðir minn átti þetta á gamalli vínilplötu, gegnumspilaðri, sem hann hélt mikið upp á.

Það var mér mikil ánægja að finna sömu upptökur og á plötunni, órispaðar, í diskasafni á Amazon, sem ég gaf honum á sjötugsafmælinu.

Reyndar heyri ég að þetta er ekki sama upptakan og á plötunni góðu, en þó sami snillingur að spila.


mbl.is Chopin á peningaseðil
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Tær snilld.

hilmar jónsson, 5.2.2010 kl. 15:37

2 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

mér þætti sko ekki leiðinlegt að geta spilað svona.

Brjánn Guðjónsson, 5.2.2010 kl. 17:08

3 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Jákvæðasta bloggsíða dagsins.

Anna Einarsdóttir, 5.2.2010 kl. 19:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband