Hænuegg

Hvort kom á undan, hænan eða eggið? það er spurningin. Allavega hóf ég þetta blogg til að hafa í frammi fjas, um allt og ekkert. Bloggið er þar með verkfæri mitt til að útbreiða fjasið. þegar málið er orðið þannig að fjasið er farið að beinast í æ ríkari mæli að blogginu sjálfu, eða réttara sagt kerfinu sem hýsir það, er ekki nema von að maður klóri sér í hausnum.

Nú hefur myndbandið góða verið 'í vinnslu' í aðra sex tíma, eftir að ég setti það inn upp á nýtt. Snillingarnir hjá blog@mbl.is, sem er netfangið sem gefið er upp á kerfisblogginu, hafa ekki svarað póstinum mínum enn, sem ég sendi klukkan 11.

Ég mun vera með uppsteit og halda úti fjasi um þetta mál út í hið óendanlega, gerist ekkert.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband