Tímamótalyf

Bergmálað úr borunni #4

Samkomulag náðist í dag milli bandaríska flugfélagsins Nothwest airlines og Íslenska lyfjafyrirtækisins Delta um þróun samheitislyfs gegn flugveiki. Markaðsvirði fyrirhugaðs lyfs er talið vera um 17,7 milljarðar dala, sem heimildamaður mbl segir vera slatta pening.

Konráð Teitsson, talsmaður Delta segir umræddan samning vera tímamótaverk. „Ekki síðra en fyrsta plata Trúbrots, um árið.“ Unnið sé að ná samningum við flugfélagið Erni á Ísafirði um prófanir lyfsins í sjúkraflugi hérlendis.

Konráð segist bjarthuga um framþróun verkefnisins.


mbl.is Stærsta flugfélag heims myndað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband