Bloggvinir

Ég man eftir ákveðnu blæti sem heltók blogheima fyrir rúmu ári. Þá voru allir að taka til á bloggvinalistanum sínum og henda úr fólki. Þá líklega bloggurum sem það sjálft ekki las.

það sem fólk kannski spáði ekki í er að bloggvinasambandið virkar í báðar áttir. Þ.e. að þótt A lesi ekki blog hjá B, getur verið að B lesi blogg A.

Sjálfur hef ég verið á blogginu í ca 1,5 ár. Ég hef sent örfáar vinabeiðnir en megnið af mínum bloggvinum hafa sent mér beiðni. Enda er ég óferjandi gapuxi.

Ég les ekki öll blogg allra á hverjum degi. Þá gæti ég ekki sinnt starfi mínu.

Það að hafa bloggvini snýst nefnilega ekki bara um það að lesa þeirra blogg, heldur ekki síður að þeir hafi sjortkött á mitt blogg.

Ég á einhvern helling af bloggvinum. Les blogg þeirra mis oft og mis vel. Sumir eru í gríninu, aðrir í alvöru þjóðmálanna. Sumir vel skrifandi og vel máli farnir en aðrir ekki. Bjútíið við flóru mannlífsins.

Ætla ekki að fremja upptalningu.

Munum bara að bloggvinassambandið er tvíbent.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Bloggavinasamand getur verið æði tvíbent!

Sigurður Þór Guðjónsson, 5.9.2009 kl. 00:56

2 Smámynd: Jens Guð

  Ég hef tvívegis gert rækilega bloggvinatiltekt.  Hent út um 20 í hvort skipti.  Ástæðan var sú að ég uppgötvaði að sumir svokallaðir bloggvinir höfðu mig ekki á bloggvinalista.  Í flestum (eða öllum?  Man það ekki) tilfellum þannig að þeir höfðu einfaldlega engan sýnilegan bloggvinalista.

  Í öðru lagi voru það bloggvinir sem aldrei höfðu nein samskipti.

  Í þriðja lagi voru það bloggvinir sem einnig höfðu aldrei nein samskipti og voru augljóslega hættir að blogga.

  Það er engin ástæða til að glenna á bloggsíðuna sína myndir af bloggvinum sem eru í raun engir bloggvinir.  Þess í stað er betra að rækta sambandið við þá sem eru raunverulegir bloggvinir.  Segi ég og er þó skammarlega latur við að skilja eftir mig fótspor á þeim bloggsíðum sem ég heimsæki.  Bæði bloggvinum og öðrum.  Skamm,  skamm.

Jens Guð, 5.9.2009 kl. 01:16

3 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Flóra mannlífsins er falleg,

vinatékk ;)

Jenný Stefanía Jensdóttir, 5.9.2009 kl. 06:03

4 Smámynd: Brattur

Ef þú ert óferjandi gapuxi þá er ég brattur broddgöltur... það er gaman að lesa skrif þín... góður penni, uxinn þinn...

Brattur, 5.9.2009 kl. 10:21

5 Smámynd: hilmar  jónsson

Ég lít á ykkur öll sem vini mína og það styttist í það að ég banki upp á hjá ykkur um kvöldmatarleytið..kv.

hilmar jónsson, 5.9.2009 kl. 19:26

6 Smámynd: hilmar  jónsson

Um helgar með fjölskylduna..

hilmar jónsson, 5.9.2009 kl. 21:48

7 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

takk fyrir innlitið öllsömul :)

Brjánn Guðjónsson, 6.9.2009 kl. 19:33

8 Smámynd: Soffía Valdimarsdóttir

Já maður þarf heldur betur að fara að taka til á blogginu sínu! Henda 2/3 þriðju út og bjóða restinni í partý!

Soffía Valdimarsdóttir, 8.9.2009 kl. 12:29

9 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

Brjánn Guðjónsson, 8.9.2009 kl. 13:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband