Smáauglýsingar

Kjötketill fæst gefins


Lítið notaður kjötketill fæst gefins. Hann hefur einungis verið notaður tvisvar, af fyrrum stjórnmálamanni og útrásarvíkingi, við samsuðu tilhæfulausra reikninga og þjófnaði úr sameiginlegum sjóðum almennings. Að öðru leiti hefur hann staðið ónotaður síðan í maí 2007.

Ketilinn er í góðu ásigkomulagi. Tveir loðfóðraðir stólar fylgja.


Áhugasamir hafi samband við skrifstofu Alþingis.

PS.
Lítið reykt bakherbergi fást á sama stað.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eygló

Púkinn þinn (skemmtilegur púki þó).
Segðu mér, alllengi hefur maður heyrt þetta að e-r hafi setið við kjötkatlana o.s.frv.  Maður skilur náttúrlega hvað átt er við, en.... HVAÐ ER KJÖTKETILL?

Eygló, 6.11.2009 kl. 00:19

2 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Millistéttin situr við kjötketilinn.  Á ekki fyrir mörgum kjötkötlum. 

Anna Einarsdóttir, 6.11.2009 kl. 11:10

3 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

minn skilningur er þessi. kjötketill er pottur sem í er soðið kjöt

Brjánn Guðjónsson, 6.11.2009 kl. 14:34

4 Smámynd: Eygló

Ætli þetta séu þá bara kaldir og svangir sem vilja sitja að þeim?

Eygló, 6.11.2009 kl. 16:55

5 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

neiþ þeir köldu og svöngu myndu einungis fá sér bara smá bita þegar hungrið sverfur að og hverfa svo frá til að hleypa fleirum að, en hinir gráðugu sitja sem fastast við katlana og halda öðrum frá þeim.

Brjánn Guðjónsson, 6.11.2009 kl. 17:24

6 Smámynd: Eygló

Hvort sem þú ert að grínast eða þetta sé rétta skýringin, - þá finnst mér þetta góð mynd og lýsing á "þessum andskotum"

Eygló, 6.11.2009 kl. 18:01

7 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

ég er alls ekki að grínast. svona eru hinir gírugu.

Brjánn Guðjónsson, 7.11.2009 kl. 00:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband