Sunnudagur, 2. október 2011
Vitleysingur vikunnar 25/9 - 1/10
Hér eftir, svo lengi sem ég nenni, mun ég tilnefna vitleysing hverrar viku. Vikan nær frá sunnudegi til laugardags.
Fyrsti vitleysingurinn er Joð.
Hans nýjasta útspil er að bregðast við lækkandi tekjum af olíusölu, sem koma til af hærra verði, með að hækka verðið.
Í eftirfarandi texta er vitnað í frétt, svo vissara er að láta hana fylgja með.
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2011/10/01/haekka_skatta_a_bensin/
Er þetta ekki til að toppa vitleysuna og opinbera skilningsleysi Joðs á eðli neytendahegðunar?
Allir tekjuliðir sem tengjast eldsneyti og bifreiðum skila minni tekjum í ár en reiknað var með í fjárlögum. Samdrátturinn nemur eitthvað á annað milljarð króna. Til að bregðast við þessu verða svokölluð krónutölugjöld hækkuð um 5,1%
Sem sagt. Minni tekjur af völdum minni neyslu, vegna of hás verðs, skal bæta með hækkun verðs. Sorrí. Ég er hvorki markaðsmógúll né jarðfræðingur, en ég tel þetta hreina snilld, eða ekki.
Í minni sveit kallaðist þetta að pissa í skóinn.
Athugasemdir
Það verður að koma karlinum.. og kerlingunni frá áður en þau rústa meira en komið er.
Nýja stjórnarhætti á meðan 4flokka krabbanum er komið frá.
DoctorE (IP-tala skráð) 2.10.2011 kl. 09:51
Gott að sjá færslur frá þér birtast aftur, eftir allt of langt hlé.
Til gamans má rifja upp gamla og góða tilvitnun í Albert Einstein:
Haraldur Hansson, 2.10.2011 kl. 21:54
Þetta minnir óneitanlega á lækniráð eins af fyrrverandi forsætisráðherrum og seðlabankastjórum okkar sem sagði þessi ódauðlegu orð: "Stundum þegar meðal virkar ekki gegn sjúkdómnum þarf að bregðast við með því að auka skammtinn af meðalinu". Og svo voru stýrivextirnir (meðalið við þenslunni) hækkaðir ... þar til sjúklingurinn drapst (bólan sprakk)!
Karl Ólafsson, 5.10.2011 kl. 23:34
þessi hagfræði er ofar mínum skilningi, enda ég bara aumur forritari sem fæst við hefðbundna lógík dags daglega. hef ekki áttað mig á svona 'fuzzy logic' ennþá.
Brjánn Guðjónsson, 9.10.2011 kl. 00:19
Haraldur. ég fékk bráðaofnæmi fyrir bloggi og þjóðfélagsumræðu almennt, sumarið 2009, þegar ekki var rætt um annað en IceSave. umræðan hefur verið heldur einsleit síðan, þótt nú spili IceSave ekki aðalhlutverkið. þrátt fyrir mónófóníska umræðu er ég að ná bata og farið að örla á smá löngun hjá mér til að blammera á ný. ég fer þó hægt af stað.
Brjánn Guðjónsson, 9.10.2011 kl. 00:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.