Þriðjudagur, 22. apríl 2008
Vorferð Sandkötunnar er í dag
Sandskatan, samtök hagsmunaaðila að hagsmunasamtökum, heldur vorferðalag sitt í dag. Þetta er skemmtiferð, ætluð til að hrista saman félagana segir Baldvin Geirsson, formaður undirbúningsnefndarinnar.
Farinn verður rúntur um Álftanesið og nágrenni. Komið við á Bessastöðum.
Þetta verður bara rosa gaman, flaut, lull og pikknikk á eftir segir Baldur. Aðspurður um hvað hann nákvæmlega eigi við með að hrista saman félagana, vill Baldur ekkert láta hafa eftir sér frekar.
Bílstjórar fóru með friði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
... þannig séð.
„Þetta er skemmtiferð, ætluð til að hrista saman félagana“
Eins gott að síðustu þrjú orðin svissuðu ekki plássi - hrista saman félagana - hrista félagana saman... *hux*. En spurning um hvort slíkt gæti bara ekki verið fun - ef maður væri í hestamannafélaginu sko ... Hristimannafélög eru víst víða og skemmtiatriðin eru oft æði flott skilst mér. Hahaha ... ómæ.
Tiger, 22.4.2008 kl. 17:52
en íslenskan er svo liðug, að ekki skiptir máli hvort þú segir 'að borða saman mat' eða 'að borða mat saman' það hefur sömu merkingu
svo túlkunin er í höndum þess sem les
Brjánn Guðjónsson, 22.4.2008 kl. 20:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.