Miðvikudagur, 30. apríl 2008
Frír bjór handa eldri körlum
Jesus de Erectos, bæjarstjóri í Puerto Varas í Chile, hefur fyrirskipað að öllum karlmönnum 65 ára og eldri skuli gefnir átta lítrar af bjór á viku. Forsaga þess máls mun vera sú að eldri konur bæjarins hafi ítrekað kvartað yfir áhugaleysi karlpeningsins. Eldri karlmenn hafi ekki sýnt þeim tilhlýðilegan áhuga, heldur hafi í auknum mæli leitað í yngra kvenfólk. Ástæðan muni ekki vera risvandadamál heldur fyrst og fremst að þær þyki ekki nægilega aðlaðandi. Í tilskipun de Erectos segir: Vitað er að bjór hefur þau áhrif á neytandann að jafnvel ryðguð skófla verður áhugaverð. Því er reynandi sú leið að auka bjórdrykkju eldri karlmanna.
Þar sem ofangreind tilskipun er nýútgefin liggja ekki fyrir tölur um ágæti hennar. Þó munu vera vísbendingar í þá átt að hún hafi gefið góða raun.
Eldri borgarar fá frítt viagra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Spúsur gamlar sparsla,
í sprungur fyrir karlana,
fjandi góð sú forvarsla,
og forherðir líka jarlana.
Þorsteinn Briem, 30.4.2008 kl. 21:15
blessaður Steini.
ég sem hélt þú værir farinn til Burundi
Brjánn Guðjónsson, 30.4.2008 kl. 21:29
lol ryðguð skólfa jafnvel áhugaverð góður þessi
cheetah (IP-tala skráð) 7.5.2008 kl. 20:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.