Bzzzz vinkona

Ég held ég hafi eignast aðdáanda, úr dýraríkinu. Hún gerði sig heimakomna hjá mér fyrir stuttu. Fáum dögum síðar var hún aftur mætt. Gott ef hún kom svo ekki aftur daginn þar á eftir, þótt ég muni það ekki alveg. Allavega. Þegar ég var á leið út, í morgun, kallaði hún í mig. Ég geng að glugganum hennar og sé þá hvar hún er mætt, með vinkonu sína með sér. Úff. Það er ósköp notalegt að eiga fluguvinkonu, en ég er ekki viss um að ég vilji fá allan vinkonuskarann hennar líka.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband