Þriðjudagur, 10. júní 2008
Ný kynslóð iPhone
Apple kynnti nýlega til sögunnar nýja gerð framleiðslu sinnar, iPhone. Mun nýja gerðin vera hlaðin tækninýjungum sem hin eldri hafði ekki. Þar má m.a. telja, myndavél og útvarp, sem og þann nýstárlega möguleika að geta sent svokölluð smáskeyti (SMS).
Notendur hér á landi hafa átt í erfiðleikum með eldri gerðina og hafa þurft að standa í allskyns hugbúnaðaruppfærslum og aflæsingum, reglulega. Nýja gerðin mun þó verða auðveldari viðfangs, því fréttir herma að framkvæma megi slíkar aflæsingar á mun auðveldari hátt.
Uppskriftin er eftirfarandi:
4 þurrkuð og mulin froskaeyru.
5 uglutár
2 tsk. meyjarhland
10 blöð alparósar. ATH. þarf að vera tínd á fullu tungli.
Þessu er hrært saman í skál og tækinu síðan velt varlega upp úr. Aðgerðin tekur ekki nema örfáar mínútur.
Verði ykkur að góðu.
Óvíst hvenær iPhone 3G kemur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Tölvur og tækni | Breytt s.d. kl. 16:13 | Facebook
Athugasemdir
Eftir uppfærslu 2.0 skilst mér að nauðsynlegt verði að eima meyjarhlandið auk þess sem útvega þarf blóðsýni úr framkvæmdastjóra hlutafélags sem skráð er í Kauphöll Íslands.
Bjarki (IP-tala skráð) 10.6.2008 kl. 16:36
tel það alveg víst, með þeim fyrirvara er Bjarki nefnir.
Brjánn Guðjónsson, 10.6.2008 kl. 16:50
Hvernig lætur maður ugluna gráta?
Brattur, 10.6.2008 kl. 20:21
froskaeyrun fást í Yggdrasli og Manni lifandi.
uglutárunum má ná af snæuglu. eina sem þarf er að lesa fyrir hana fjárlögin.
Brjánn Guðjónsson, 11.6.2008 kl. 02:47
hmmm, Yggdrasli..hljómar eins og eitthvað ónýtt drasl
Brjánn Guðjónsson, 11.6.2008 kl. 02:48
Eru menn ekki bara komnir í Galdrakerlingafélagið? Uglutár hér og froskahalar þar, og hvað var skorið úr lifandi Manni - eða var það Manni lifandi?
Er ekki nafnið Yggdrasil - en ekki Yggdrasli?
En, brilljant færslan þín um Ásdís Sel-ur...
Knús á þig boxari góður og eigðu ljúfa nótt!
Tiger, 11.6.2008 kl. 03:47
var ekki alveg viss um þágufallsmyndina af 'Yggdrasill'
Brjánn Guðjónsson, 11.6.2008 kl. 09:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.