Þriðjudagur, 17. júní 2008
Rassgatslaus sný ég heim
Mikið djöfulli átti ég gott kvöld. Fór á tónleika í Höllinni sem voru alveg fyrir allan peninginn. Var ekki einn þeirra sem greiddu þúsundkalli meira fyrir að fá að sitja uppi í stúku og aka sér í sætunum. Nei. Það var dansað til helvítis niðri á gólfinu. Teknó er nefnilega tónlist sem maður finnur með hjartanu og út í lappirnar. Ekki gáfumannatónlist fyrir fólk sem setur hönd undir kinn og hummar spekingslega.
Ég veit ekki hve mörgum lítrum ég tapaði í svita. Allavega voru fötin límd við mig og ég kom heim vel sveittur og klístraður.
Sándið á tónleikunum var frábært í alla staði og eiga hljóðmenn kvöldsins bestu þakkir skilið. Eftir tónleikana var ball á Nasa og það var hálf pínlegt að dansa við langbylgjuhljóminn þar, eftir að hafa verið á tónleikunum. Aðallega samt að tónlistin á Nasa var ekki nógu gröð. Hljómaði meira eins og kexverksmiðja. Þe. bara lög sem voru engin lög, heldur eiginlega bara trommur.
Kvöldið í heild samt tær snilld. Djöfull er gott að dansa svona af sér böttið.
Smá sýnishorn sem ég tók. Samt lítið að marka þar sem hljóðið í klippunni er svo bjagað af hávaðanum. Vantar bassann og sonna, en stuðið var sko alveg til staðar.
Athugasemdir
Einn af hljóðmönnum kvöldsins er sonur minn. Mont mont mont .......
Anna Einarsdóttir, 17.6.2008 kl. 10:55
Þetta myndband er ekki sjánlegt Mr. Böttman.
En til hamingju með líkamsræktina.
Jenný Anna Baldursdóttir, 17.6.2008 kl. 11:42
Og ég sem hélt að þín eina líkamsrækt væri sófinn þinn ?!!
Himmalingur, 17.6.2008 kl. 12:08
Anna, þú mátt koma til hans hrósinu
Jenný, ég þarf greinilega að nota annað codec. ómögulegt að hafa þig svona úti í videókuldanum.
Hilmar, ssssssshhhhhh. ekki segja neinum
Brjánn Guðjónsson, 17.6.2008 kl. 14:54
Varstu á GusGus? Þar hefði ég sko viljað vera maður minn, dansandi á dansgólfinu tryllt. Hefðum getað tekið sveifluna eins og í gamla daga
. Bryndís Edda fór og af öllu hjarta hefði ég komist þá hefði ég farið með henni!
Ása (IP-tala skráð) 20.6.2008 kl. 11:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.