Mánudagur, 25. ágúst 2008
Hátæknileg afhommun?
Af svölunum í vinnunni sést yfir á lóð trúfélagsins Krossins. Allt í einu fer félagi minn að velta fyrir sér hvaða gámar þetta séu sem standa við hús Krossins. Hann hafi séð þá í návígi og sýnst hér vera um kæli- eða frystigáma að ræða. Ég áttaði mig jafnframt á að gámar þessir hafa verið þarna um alllangt skeið. Líklega einhver ár. Þrátt fyrir miklar vangaveltur og spökúleringar komumst við ekki að afgerandi niðurstöðu.
Síðar um daginn voru vangavelturnar teknar upp að nýju. Þá kveiktu menn á perunni!
Hér hlýtur að vera um hátæknilegan afhommunarbúnað að ræða.
Athugasemdir
kannski hann sé bilaður og hommi menn í stað þess að afhomma
Brjánn Guðjónsson, 25.8.2008 kl. 21:41
... aha... nú veit ég svolítið um málið... hann Gummi frændi í "Neðra" (leigir neðri hæðina hjá Gunnari)... á líklega þessa gáma og geymir í þeim sósukrafta... nema þá að Gummi frændi sé kominn í companý með Gunnari í vafasama framleiðslu... trúi því bara ekki upp á hann Gumma....
Brattur, 25.8.2008 kl. 22:20
aha, þarna fer þá fram sósíalismi
Brjánn Guðjónsson, 25.8.2008 kl. 22:37
veit einhver hvernig svona vélræn afhommun fer fram? ætli þetta sé langt ferli, kannske byrjað á ristilskolun og hann uppfærður og endurforritaður? svo kannski er af-homminn tekinn út með gei-tungum?
maður fer að velta sér upp úr svona við svona blogg.
fellatio, 25.8.2008 kl. 23:06
kannski menn séu makaðir út í sósu?
Brjánn Guðjónsson, 25.8.2008 kl. 23:13
vona að það sé ekki verið að dæla í þá kjúklingasósukröftum. maður veit ekki hvað gæti gerst þá.
fellatio, 25.8.2008 kl. 23:18
tja... þetta er eiginlega orðin Krossgáta...
101moi (IP-tala skráð) 26.8.2008 kl. 03:08
...þar sem Jesú náði að metta einhvern helv..helling af liði með 40 fiskum þá tel ég líklegt að það sé beðið dag og nótt til þess að fylla þennan frystigám... það er spurning hvort þetta sé löndun fram hjá kvóta... þetta er mál fyrir harrý og heimi...
101moi (IP-tala skráð) 26.8.2008 kl. 03:15
Það er á brattan að sækja með þessa afhommun, sem ætti að vera einföld instant aðferð. Ég var að lesa bloggið hennar Agnýar, og þar kemur fram að soya vörur valda því að karlmenn verða kvenlegir. Kannski Gunnar í Krossinum fengi meiru áorkað með því að láta banna þá afurð en að nota sértækar frystilausnir á kúlurnar.
Ester Sveinbjarnardóttir, 26.8.2008 kl. 08:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.