Þriðjudagur, 26. ágúst 2008
Fyrir ykkur sem hafið tekið mark á Svíum
Samkvæmt nýrri könnun telja Svíar sjálfa sig vera best klæddu norðurlandabúana.
Samkvæmt öðrum, e.t.v. minna vísindalegri könnunum telja Svíar jafnframt sjálfa sig vera gáfaðasta allra norðurlandabúa, ásamt því að tala fegursta tungumálið, gera bestu kvikmyndirnar, bestu tónlistina og besta samgöngukerfið.
Einnig eru ýmsir utan Svíþjóðar sem virðast farnir að trúa þessu líka. Þá einna helst íslenskir f.v. námsmenn í Svíþjóð.
Aðrar óvísindalegar kannanir um viðhorf Svía til þeirra sjálfra, sýna að þeir telja sig vera hugmyndaríkasta, og....haldið ykkur nú!.......skemmtilegasta.
Þarf fleiri orð um hve marktæk viðhorf Svía um sjálfa sig eru?
Svíar telja sig snyrtilegasta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
þeir eru kannski snyrtilegastir, en örugglega leiðinlegastir!
Gulli litli, 26.8.2008 kl. 20:15
já þeir eru örugglega í harðri samkeppni um þrjú efstu sætin í þeirri keppni
Brjánn Guðjónsson, 26.8.2008 kl. 20:22
fokk... nú verður farin sænska leiðin í þessu.
fellatio, 26.8.2008 kl. 22:33
Danir tala líka um að "blive svenske fuld" þegar maður drekkur of mikið og er út úr korti..
Gulli litli, 26.8.2008 kl. 23:19
... já, nú varð ég að halda mér... hef aldrei séð né heyrt um skemmtilegan svía... ekki nema þá kannski svíagrýlan... en af henni lak reynda fýlan...
Brattur, 26.8.2008 kl. 23:34
Samkvæmt könnunum eru svíar montnastir í heimi og slá þar með út norð-austurlandið í monti...
En hún Astrid Lindgren var flott!!
alva (IP-tala skráð) 27.8.2008 kl. 00:45
Bíddu! Erum við ekki lang flottust, gáfuðust, hamingjusömust, best klædd með fallegasta fólkið? :-)
Linda (IP-tala skráð) 27.8.2008 kl. 06:51
Þegar Svíi er spurður svona "Vilka är bäst i Norden" þá hugsar Svíinn um Danmörk, Noreg, Finnland og Svíþjóð (alls ekki í þessari röð ). Ísland kemur fæstum Svíum í hug í svona samhengi svo þetta er nú ekki alveg tapað fyrir hörundssára Íslendingar
Gulli (IP-tala skráð) 27.8.2008 kl. 07:27
þetta eru bara fokking vopnasalar...
101moi (IP-tala skráð) 27.8.2008 kl. 21:27
Neibb það þarf ekkert að ræða það frekar !
Ofurskutlukveðja
Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 27.8.2008 kl. 22:00
Jävla fördommar mot svenskarna. Fy och skam.
Jenný Anna Baldursdóttir, 28.8.2008 kl. 10:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.