Þriðjudagur, 17. febrúar 2009
Úr anus
Það er stæk skítalykt af þessu máli. Ríkisfyrirtæki selur eignir án útboðs eða auglýsinga.
Hverjum var boðið á útsöluna og hvernig voru þeir valdir? Sem eigandi bankans á ég kröfu að fá það uppgefið.
Hvernig tókst bankamönnum t.d. að hafa uppi á bílasölunni Úranusi? Bílasala sem virðist staðsett í skúffu í íbúðarhúsinu að Hegranesi 21, Garðabæ.
Ætli nágrannarnir séu ekki pirraðir að hafa hverfið morandi í bílum, til sölu, um allar gangstéttir? Einmitt, það eru engir bílar. Bara brask. Líklega gamall böddí einhvers bankamannsinns.
Fnykurinn er sem væri hann Úr-anusi.
![]() |
Seldu lúxusbíla Kaupþings |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sammála. Verðum að fá upp á borðið hverjir standi að baki þessum gjörningi.
Davíð Löve., 17.2.2009 kl. 12:17
Hver er bankamála ráðherra ?? Hann verður að hafa allt uppi á borði ellegar segja af sér, annað eins rugl hefur ekki sést hér síðan ...hmmmm... eða þannig.
Magnús (IP-tala skráð) 17.2.2009 kl. 20:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.