Sunnudagur, 22. febrúar 2009
Hnetur
Ég er mikill aðdáandi hneta. Saltaðra sérstaklega.
Löðrandi fitan og saltið hefur þessa afurð í hærri hæðir.
Við erum of norðarlega, hér í Mongólíu, til að rækta hnetur. Kaupum þær aðallega frá Thailandi og Indlandi. Hnetur eru okkar feitmeti. Feitmeti hefur bjargað mörgum frá hungri. Í því sambandi má nefna Frakka, Þjóðverja, Japani og Íslendinga.
Japanir og Íslendingar uppgötvuðu spik hvala, en Frakkar og Þjóðverjar voru meira í fituinnihaldi rauðvína.
Kannski þetta sé skýringin á langlífi Íslendinga og Japana?
Hnetur eru góðar, ekki síst vegna fitunnar.
Vinna á hnetuofnæmi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
hnetur eru VIÐBJÓÐUR!!
Steini tuð! (IP-tala skráð) 22.2.2009 kl. 18:30
hvaða mark má taka á þér, sem borðar aldrei neitt?
Brjánn Guðjónsson, 22.2.2009 kl. 21:58
Éttu hval addna.
Jenný Anna Baldursdóttir, 23.2.2009 kl. 12:44
Ég finn bragð að því sem að ég borða, og hnetur eru og verða alltaf viðbjóður, sama hvað þú segir Brjánn eða nokkur annar.
en það er fínt að sleikja saltið af þeim þegar maður er fullur ;) manstu ekki eftir því?
Steini tuð. (IP-tala skráð) 23.2.2009 kl. 14:51
ég elska hnetur....;) En feitabolla með eindæmum hehe
Halla Vilbergsdóttir, 23.2.2009 kl. 15:55
nei, man ekkert eftir því. var líklega svo fullur
jújú, maður hefur ósjaldan farið á beit, þegar hnetur eru annarsvegar namminamm
Brjánn Guðjónsson, 23.2.2009 kl. 18:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.