Föstudagur, 15. maí 2009
Firringarseti Íslands
Eins og venjulega flutti forseti Íslands tölu við setningu Alþingis. Meðal annars sagði hann að að þótt margt megi sannarlega bæta í stjórnskipan landsins blasi engu að síður við sú staðreynd að stjórnarskráin sem þjóðin samþykkti við lýðveldisstofnun dugði vel þegar mest á reyndi.
Hefur eitthvað reynt á stjórnarskrána? Nei. Það var jú kosið og that's it. Ekki persónukjör. Ekki eitt kjördæmi, með jöfnum atkvæðarétti þegnanna.
Það má svo sem alveg segja að reynt hafi á stjórnarskrána, að því leiti að kosið var samkvæmt henni, en að hún hafi dugað! Því fer víðs fjarri.
Erum við að tala um firringu eða algera firringu?
Þjóðin tók valdið í sínar hendur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hann er svo sjálfsupptekin Ólafur Ragnar, hann er hér að vísa í það þegar hann stöðvaði fjölmiðlalögin ??
Einar Guðjónsson, 15.5.2009 kl. 22:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.