Bóbó er tekkari

Alveg búinn að sjá það. Tók af honum tvær klippur. Verst að á annarri þeirra sést ekki hvernig hann hreyfði á sér bakið í takt við tónlistina, en hin er betri og ég hendin henni því hér inn.

Jenný þú verður að gefa mér ítarlega skýrslu um þín vídeómál. Skil ekkert hvers vegna þú ert ekki að sjá vídeóin. Ákvað að nota elstu útgáfuna af MPEG4 codecinu. Reyndar frá Microsoft, svo ef þú ert að nota Makka máttu láta mig vita. Kannski verð ég að nota sultukrukku til að Makkafólk sjái þetta. Hljóðið eð svo bara MP3.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Signý

Nú er ég á makka og hef ekki átt í neinum vandræðum með að taka við boðskap þínum... ekki heldur núna... eina sem böggar mig er að ég vildi að ég væri svona klár að ég gæti sett svona vidieo á bloggið hjá mér... En það er kannski ágætt að ég get það ekki því þá mundi ég líklega missa mig algjörlega...

Er Jenný ekki bara á þessum ótæknivædda-aldri?... ég á þannig pabba... það er svakalegt!

Signý, 17.6.2008 kl. 18:28

2 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

hehe, líklega þarf Jennú bara að sækja nokkur codec af netinu.

Sygný mín. minnsta málið að segja þér til með hvernig maður setur svona vídeo, eða hljóð, inn í bloggið

Brjánn Guðjónsson, 17.6.2008 kl. 18:37

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég sver það og ég er ekki með makka en vídeóið sést ekki.

Ég er tæknilega græjuð you know.

Hmm....

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.6.2008 kl. 22:48

4 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

málið er orðið hið dularfyllstta.

Jenný, hin græðuóða fær ekki að sjá téð myndvörp. veit ríkisstjórnin af málinu.

mér finnst þetta bara spurning um Bjössa og taserinn!

Brjánn Guðjónsson, 17.6.2008 kl. 23:44

5 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

ein lausn er auðvitað að senda alltaf afrit á filmu, í pósti til Jennýjar

Brjánn Guðjónsson, 17.6.2008 kl. 23:47

6 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég sé myndbandið ekki heldur, ég held að það sé popup blokkari sem stoppar það hjá mér.  Eða kannski það að ég er ekki með activeX virkjað hjá mér.  Ég er frekar slöpp í þessum tæknimálum

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 18.6.2008 kl. 02:05

7 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

hvað er þetta með ykkur videolausu kvennsurnar?

Brjánn Guðjónsson, 18.6.2008 kl. 02:30

8 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

greinilegt að Jóna og Jenný verða að halda krísufund

Brjánn Guðjónsson, 18.6.2008 kl. 02:32

9 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

Bóbó er alveg að fara meðitta

Brjánn Guðjónsson, 18.6.2008 kl. 02:33

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Já ég er með svona poppupblokkara.  Ætli ég sé þá búin að missa af 173 skemmtilegum vídeóum?  Því það stendur að sú tala sé blokkuð.

Lalalala ég syng bara sjálf.

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.6.2008 kl. 09:36

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég er búin að reddessu af því ég er svo klár.

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.6.2008 kl. 09:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband