Fyllerísgróði

Ég hef verið á fundi með loftinu, eins og venjulega.

Var að spökúlera. Gulli segir ekkert óeðlilegt við það að taka við tveimur millum, í því andrúmslofti sem þá var. 2007. Sama hlýtur að eiga við Steinunni Valdísi.

Í dag finndist það hrein firra að taka við tvöþúsund þúsundum króna. Voru allir fullir addna 2007? Þá meina ég í alvöru, fullir.

 

Nú er ég dottinn í'ða. það er svo mikið á fylleríinu að græða.


Minningar

Ég var að lesa þesa frétt: http://eyjan.is/blog/2009/04/23/thora-kristin-kosin-formadur-bladamannafelagsins-mot-frambjodandinn-tok-saeti-i-stjorn/

Ég datt ca 30 ár aftur í tímann.

Stóri bróðir minn var í vinahóp sem unglingur, eins og gengur. Ég man eftir þremur strákum, að bróður mínum frátöldum. Kristinn var einn þeirra, ásamt öðrum ónefndum góðmennum.

Ég var níu ára pottormur. Pabbi stjórnaði kór, sem mamma mín jafnframt söng í. Á mánu- og miðvikudögum voru kóræfingar. Þá fóru þau út og stóri bróðir eða stóra systir gættu litla fávitans. Hvaða unglingur nennir að hanga yfir níu ára barni?

þetta var þó þrusugaman fyrir pottorminn mig. Strákarnir mættu og spjölluðu og einhvernveginn var ég aldrei settur útundan. þeir spiluðu ELO og töluðu um stelpur og eitthvað. Ég skildi ELO.

Góðar æskuminningar.

Seinna kem ég að jafnyndislegum minningum tengdum systur minni, vinkonu hennar og ABBA!!


mbl standi fyrir máli sínu

mbl.is heldur því fram að Andrés önd sé kominn á kreik.

Börn landsmanna iða nú í skinninnu að fá að hitta gaurinn.

Eftir rannasókn Bergmálstíðinda kom í ljós an öndin er hvergi, heldur eru einhverjir njólar að skíða í hans nafni.

Gaf Herra Andrés leifi fyrir að nafn hans væri notað?

Er Andrés kannski bara skáldsagnapersóna?

Hver er þá Andrés? Aðhyllist Mogginn áburgðarfulla fréttamenbnsku?


mbl.is Andrés önd kominn á kreik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landið eitt kjördæmi

Þetta er enn ein ástæðan til að koma því í gegn.

Er fólk í s-v kjördæmi eitthvað merkilegra en fólk í vesturkjördæmi?

eiga ekki allir að vera jafn réttháir? vilja menn ekki flokka landið sem lýðræðussamfélag?

er pabbi minn sterkai en pabbi þinn?

 

slær hjarta okkar í €vrópu eða Afríku?


mbl.is Tvöfaldur munur á atkvæðavægi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB þvermóðskan

Var að skoða vef bloggvinar míns og eðal þverhauss, Bjarna Harðarsonar.

Þar er tengill á vef sameinaðra þverhausa, osammala.is.

Samansafn þeirra sem eru á móti €vrópusambandsaðild, sama hvað. Án þess að vita í hvað í henni felst.

Það liggur fyrir að  fikveiðistefna €SB hefur bara með sameiginlega fiskisofna að gera. Það er tilfellið í okkar dæmi. Okkar fiskistofnar eru ekki sameiginlegir með þeim, nema í mjög litlum kæli.

Staðbundnar auðlindir, ss olía, heitt vatn, ár, eru undir yfirráðum hvers ríkis.

 

Hvaða auðlindir eru þverhausarnir að tala um? Mannauðsauðlind Framsóknarflokksins?


Mitt kjördæmi

Nú er lokið borgarafundi RÚV með frambjóðendum Reykjavíkurkjördæmis-suður, sem haldinn var á Nasa, sem er í Reykjavíkurkjördæmi-norður. Mig skorti ferðastyrk til að sækja fundinn svo langt að.

Í það heila fannst mér allir frambjóðendur hafa komið þokkalega frá fundinum. Fannst hvimleiðust áberandi klappliðin tvö, Sjálfstæðismanna og Vinstri grænna. Maður sá alltaf, í bakgrunninum, sama fólkið klappa fyrir Gulla og aðra fyrir einhverjum öðrum.

Hvað um það.

Nú gefur Gulli verið eftirlýstur í bloggheimum. Verið týndur. Hann skaut þó upp kollinum í kvöld. Svei mér þá. Mér fannst hann bara standa sig ágætlega. Við skulum samt ekki alveg missa okkur. Ég er ekki að fara að kjósa hann, en tel hann jafnvel hafa náð að landa einu atkvæði eða tveimur meðal óákveðinna áskrifenda FLokksins.

Ég tók ákvörðun um síðustu helgi um hver fái mitt atkvæði. Enn hefur ekkert gefið mér tilefni til að breyta þeirri ákvörðun minni. Ég var lengi að gæla við Samfó og Borgó, framan af. Sá svo að ég gæti ekki snert fjórflokkinn svo mikið sem með priki. Ég er þó sammála Samfó um að viðræður við €vrópusambandið eru nauðsynlegar. Borgó leggst ekki gegn slíku. Hvort ég samþykki aðild veltur síðan á hvað muni liggja á borðinu. Þjóðin verður að fá að ákveða það.

Birgitta Jónsdóttir, fulltrúi Borgó, stóð fyrir svörum í kvöld. Virtist pínu óörugg í fyrstu, eins og flest hin. Það skiptir þó ekki máli, hvort fólk hiki í þrjár sekúndur áður en það svarar eða hvort það kann að tala með krepptan hnefa eins og Joð, sem hefur áratuga reynslu af þingsetu, í áskrift. Að vera vanur/óvanur framkomu í sjónvarpi hefur ekkert að gera með hvort fólk geti barist fyrir sannfæringu sinni á Alþingi. Nei. Það skiptir máli hvað fólk segir og hvað því finnst. Simple as that.

Birgitta og hennar fólk fær minn kross á kjördag. Ekki af því hún er bloggvinur minn, heldur vegna þess að ég finn mesta samsvörun með henni og stefnumálum Borgara.

X-O

 


Mjúku málin blífa

Kolbrún Hafþórsdóttir, vinstrisinnaður grænjaxl, hefur sent fréttastofu Bergmálstíðinda eftirfarandi yfirlýsingu.

„Vinstrihreyfingin - Grænt framboð setur á oddinn, eins og nafn hreyfingarinnar gefur til kynna, fyrst og fremst aukið framboð á grænmeti. Aukið grænt framboð, hægri og vinstri. Þó aðallega vinstri. Framboð á lífrænt ræktuðu grænmeti, því sjálfbærni er grundvallaratriði. Því stríðir það algerlega gegn stefnu okkar að standa í einhverju olíuævintýri. Olíuvinnsla er í eðli sínu karllæg. Einsýnt er að störf tengd olíuvinnslu yrðu aðallega karlastörf og því í andstöðu við hinar mjúku femínísku áherslur okkar að stuðla að slíku. Því mun Vinstrihreyfingin aldrei samþykkja slíkt. Nær væri að líta í aðrar og mýkri áttir er kemur að eflingu atvinnulífs, eins og eflingu jógakennslu sem og annarar hugleiðslu, að ógleymdu grænmetinu.“


mbl.is VG gegn olíuleit á Drekasvæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sumir hafa of mikinn tíma

en sitja þó ekki aðgerðalausir.


When you talk like an idiot, and act like an idiot, you become one

Enn eina ferðina rifjast þessi orð, fyrirsagnarinnar, upp fyrir mér.

„Percy Westerlund, sendiherra Evrópusambandsins gagnvart Noregi og Íslandi, hefur sagt það mikinn misskilning hjá Sjálfstæðisflokknum á Íslandi að halda að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn geti komið því til leiðar eða haft milligöngu um að Íslendingar geti tekið upp evru.“

Án þess að geta fullyrt það, þykir mér talsvert líklegra en ekki að íslenskur fréttamaður hafi leitað viðbragða Percy Westerlunds en að hann hafi tekið upp hjá sjálfum sér að hringja að fyrra bragði til að tjá sig. Ég tel embættismenn Evrópusambandsins ekki svo upptekna af stjórnmálum uppi á Íslandi, eða hvað Sjálfstæðismenn bulla þennan daginn eða hinn.

Hann hafi því einfaldlega verið að svara spurningu fréttamanns. Eru það óeðlileg afskipti af af íslenskum stjórnmálum? Hvurs konar endemis þrugl er þetta?

Vær ekki nær að menn hættu að tala eins og eðjótar og segja heldur eitthvað af viti, svona til tilbreytingar? Þeim veitir víst ekki af. Alla vega svona rétt fyrir kosningar.


mbl.is ESB blandar sér í kosningabaráttu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ólöglegar handfæraveiðar

Þrír sjómenn voru handteknir í dag fyrir ástundun ólöglegra handfæraveiða.

Ríkislögreglustjóri segir gjörninginn aðför að fiskistofnunum.

Mennirnir munu hafa veitt tonn af ýsu utan kvóta. Talsmenn LÍÚ hafa lofað framgöngu landhelgisgæslunnar. „Af okkar 30 þúsundum gjafakvótans, er þetta skitna tonn að skaða okkur verulega“ segir Ufsi Kópsson, talsmaður útgerðargreifa.

Bátur þremenninganna mun nú reka frá landinu, en lögreglan leitar hans.


mbl.is Skútunnar enn leitað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband