Eflum strandflutninga

Það mætti byrja á að nota þann aukna kostnað sem hin stóraukna trukkaumferð óhjákvæmilega hefur haft á viðhald vega, eftir að strandflutningar svo að segja (eða alveg) lögðust af, í að niðurgreiða strandflutninga. Fyrir utan beinan fjárhagslega kostnað er ótalinn allur þjóðarpirringur hins almenna borgara sem verður fyrir því óláni að aka innan um þetta úti á vegum.

Ég er almennt alfarið á móti aðgerðum eins og niðurgreiðslum en þegar um slíkt þjóðþrifamál er að ræða, eins og að losna við þennan ófögnuð af vegum landsins, ætti tilgangurinn að helga meðalið.


mbl.is Áframhaldandi „umferðarskærur"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband