I couldn't care less

Djöfuls væl í hænsniðnaðarmönnum. Seljandi okkur 30% vatn á okurverði og hafa ekki siðferðisþroska til að halda kjafti.

Ég ætla rétt að vona að hingað flæði kjúklingur. Lítið vatnsfylltur og á mannsæmandi verði. Þessir kjúklingabarónar hér mega fara á hausinn mín vegna. Ekki græti ég þá. Þetta mun svo bara batna við inngöngu í Evrópusambandið. Þá verður vonandi meira úrval og ekki þörf á að versla við þessa andskotans mafíu.


mbl.is Spáir miklum innflutningi á kjúklingabringum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þér má ekki vera alveg sama. Ísland verður að hafa einhverjar auðlindir, mér er sama hvort þú eða hænsnabóndi búi til útflutningsverðmæti eða verðmæti sem nýtast innanlands á samkeppnishæfu verði. Ég starfa við þjónustu, ég lít á mitt starf sem verðmætt og ég vil ekki missa það.

KátaLína (IP-tala skráð) 3.5.2008 kl. 22:03

2 identicon

KátaLína hvernig er íslenzkur kjúklingaframleiðsla auðlind.  Önnur en auðlind fyrir auðmenn í landinu til að okra á almenningi. Það er ekkert sem réttlætir að skilgreina kjúklingaiðnaðinn sem landbúnað. Heldur er þetta hrein og klár iðnaðarframleiðsla og það á ekki að vernda hann frekar en t.d plastiðnað , skipaiðnað eða whatvever.  Mig hlakkar sko sannarlega til að geta verslað innfluttar bringur á viðráðanlegu verði í bónus i framtiðinni.

Þorsteinn Ingimarsson (IP-tala skráð) 3.5.2008 kl. 22:13

3 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

tek undir með Þorsteini

Brjánn Guðjónsson, 3.5.2008 kl. 22:27

4 Smámynd: Óskar Þorkelsson

ég vil bara benda þér á eitt Brjánn.. það eru ekki pumpað 30 % vatni í bringur... þetta er bara uppspuni í þér.. en hitt er svo annað mál að bringur eru fáranlega dýrar á íslandi.

Óskar Þorkelsson, 3.5.2008 kl. 22:42

5 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

10% epa 30%, I don't care

allavega er ekki hægt að steikja íslenskar kjúklingabringur. þær bara soðna í öllu vatninu

Brjánn Guðjónsson, 3.5.2008 kl. 22:58

6 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

og það gerir þetta hráefni að 3ja flokks vöru

Brjánn Guðjónsson, 3.5.2008 kl. 23:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband