Hægðatregða í háloftunum

Flugfélagið JetBlue á yfir höfði sér skaðabótamál af höndum 25 farþega flugfélagsins. Málsástæður munu vera þær að JetBlue hafði tekið að sér að ferja hægðatregðusjúkling frá Minneapolis til Boston. Sjúklingurinn sat á salerninu alla leiðina og hamlaði þar með öðrum farþegum vélarinnar að gera þarfir sínar þar.

Ástandið var hræðilegt“ segir Maurice Smith, snyrtifræðingur, er var um borð í umræddu flugi. „Fólk var farið að laumast í tómu sætaraðirnar og skila af sér þar. Það var gott að komast undir ferskt loft á ný.“

Talsmaður JetBlue vill lítið láta hafa eftir sér um málið. Hann segir þó flugfélagið ekki halda úti rekstri almenningssalerna.


mbl.is Á flugvélarklói í þrjá tíma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbjörn Friðriksson

Brjánn. 

Það voru engar "tómu sætaraðirnar".  Þessvegna var gaurinn á salerninu!

Hvert fór þá snyrtifræðingur inn og hinir farþegarnir?  Flugstjórnarklefann?  Ekki yrði ég hlissa.

Kveðja, Björn bóndi.

Sigurbjörn Friðriksson, 14.5.2008 kl. 13:53

2 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

lastu ekki frétt Bergmálstíðinda? ekkert þar um að vélin hafi verið full, heldur að hægðatregðusjúklingurinn teppti dolluna

Brjánn Guðjónsson, 14.5.2008 kl. 14:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband