Jónatan sýknaður

Eftirréttur sýknaði í dag Jónatan Liningstone máv, af þeirri sök að hafa með yfirgangi haft í frammi hreiðurbrot og ungaát við Bakkatjörn.

Í dómi Eftirréttar segir meðal annars; „Mávar hafa ekki roð í álftir og því er það útilokað að ákærði hafi getað framið verknaðinn.“

Í framhaldinu hefur komið í ljós að verknaðurinn var aldrei framinn og því ljóst að Jónatan er sýkn saka. Hins vegar mun hafa sést til ferða einhvers á staðnum. Lögreglan vill lítið gefa út um það mál, en heimildamaður Bergmálstíðinda segir þar hafa verið á ferð seðlabankastjóra nokkurn sem hafi verið að gera tilraunir með stýrivexti, á fuglum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Vinnurðu við textagerð einhvers staðar, Brjánn? Þú hlýtur að geta gert þér húmorinn og hugmyndaflugið að auðsuppsprettu!

Lára Hanna Einarsdóttir, 17.5.2008 kl. 20:52

2 identicon

sammála Láru þú ert skemmtilegur penni og gaman að koma hér inn þegar maður er eitthvað down. Þú er skemmtilega kaldhæðinn :)

  Fjasmundur aka Fjasman hhaha notaðu þér fjas til framdráttar.. er það ekki mottóið  

Ingunn Valgerður Henriksen (IP-tala skráð) 18.5.2008 kl. 01:38

3 identicon

tala nú ekki um hvað þú ert vel talandi/skrifandi...... ( vel lesinn)

Ingunn Valgerður Henriksen (IP-tala skráð) 18.5.2008 kl. 01:40

4 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

textagerð? það má segja það, 'in a way'

ég forrita

Brjánn Guðjónsson, 18.5.2008 kl. 07:29

5 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

en takk fyrir hrósið, dúllurnar mínar

Brjánn Guðjónsson, 18.5.2008 kl. 07:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband