Indjáni Jóns slær í gegn

Fjórða myndin í röðinni um Indjána Jóns var frumsýnd í Cannes í dag. Myndin, sem ber heitið Indiana Jones - An old man's fart hefur hlotið lof gagnrýnenda. Í gærkvöldi var myndin kynnt fyrir félagi gagnrýnenda og var þar boðið upp á snittur og bollu. Talsmaður gagnrýnenda segir mikið til koma þótt fáir úr hans röðum hafi séð sér fært að mæta á frumsýninguna í dag.

Myndin verður tekin til sýninga hérlendis í júlí, í Stokkseyrarbíói.


mbl.is Indiana Jones fær góða dóma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiður Helgadóttir

Verst að ég er ekki gagnrýnandi, hefði vel getað hugsað mér snittur og bolluglas

Heiður Helgadóttir, 18.5.2008 kl. 17:41

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ég hélt að þetta væri um Jón Indíafara. Hann var gríðarlegur ævintýramaður, sem barðist í sjóorrustum og flandraði um fákunn lönd.  Það væri þá nær að gera mynd um hann. Hann dó svo fótalaus í kör nálægt Súðavík blessaður.

Jón Steinar Ragnarsson, 18.5.2008 kl. 19:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband