Eru leiðindin þess verð?

Var að fá símtal frá stóra bróður. „Ertu ekki búinn að opna póstinn þinn?“ spurði hann. Ég leit á umslagahauginn á eldhússborðinu. „Nei. Ekki nýlega“ svaraði ég. Hann spurði hvort ég hefði ekki fengið umslag frá HR. Jú, það víst. Ég opnaði það og las yfir. Einhver kynning á mastersnámi. Úff, þegar ég kláraði bé-essinn vorið 2004 var ég kominn með námseitrun. Gat ekki hugsað mér að setjast á skólabekk næstu 100 árin. Sér í lagi ekki í eitthvert þurrt akademískt nám eins og mastersnám. Ðökk, hvað ég hata þurr fræðilegheit.

Ætla samt að kíkja á kynningarfund með gamla. Ég á þó alveg eftir að sjá mig fara í þurrkunntulegt mastersnám. Fræðilegheit og annan viðbjóð. Maður veit þó aldrei sína ævi fyrr en öll er.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband