Fundust eftir 5 tíma

3 strákar villtust í Heiðmörk í dag. Að sögn björgunarsveitarinnar Hjörleifs, barst tilkynning um hvarf þeirra eftir hádegi í dag. Þeir höfðu lagt af stað frá Hafnarfirði í morgun og ætlað sér að ganga til Hveragerðis. Þegar þeir mættu ekki í miðdegiskaffi í Litlu Kaffistofunni, eins og ráð var fyrir gert, var ákveðið að hefja leit. Undir kvöld fundust þeir við Rauðhóla og höfðu þeir þá fundið forláta golfkylfu og farið að leika sér með hana.
mbl.is 3 strákar villtust í Þórsmörk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Andrea

þú ert fyndinn :)

Andrea, 20.5.2008 kl. 23:57

2 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

ég þakka hlý orð í minn garð, yðar háæruverðug

Brjánn Guðjónsson, 21.5.2008 kl. 00:06

3 identicon

Hvaða djöfulsins þvæla er þetta? Ég var einn af þessum sem týndist og þú ert skal ég segja þér EKKI fyndinn.

Alex (IP-tala skráð) 22.5.2008 kl. 19:42

4 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

sorrý Alex minn. Fyrst allt fór vel og þið heilir á húfi, fannst mér í lagi að gera smá grín. Annars hefði ég aldrei gert það.

Brjánn Guðjónsson, 22.5.2008 kl. 19:45

5 identicon

Verð nú að segja að kennararnir gerðu smá grín að manni fyrir að vera villast þarna bara rétt hjá en við vorum því á hættu svæði þ.a.m stóru grjót hruni o.s.frv.

Alex Kári (IP-tala skráð) 22.5.2008 kl. 19:46

6 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

bara gott að þetta fór allt vel og þið eruð heilir á húfi. það er fyrir öllu.

Brjánn Guðjónsson, 22.5.2008 kl. 19:52

7 identicon

Já segðu

Alex (IP-tala skráð) 22.5.2008 kl. 19:55

8 identicon

Alex þú verður samt að viðurkenna að þessar sígó pásur þínar í grunnskóla eru ornar soldið slæmar.. byrjaður að villast :'D hahaha

Fjalar (IP-tala skráð) 22.5.2008 kl. 23:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband