Miðvikudagur, 21. maí 2008
Ég hef eignast ungling
Og það segir mest um hve aldraður ég er orðinn.
Nú er Loginn minn, frumburðurinn, orðinn táningur. 13 ára í dag, 21. maí. Nú má ég líklega ekki kalla hann kútinn minn lengur, nema í lokuðu afmörkuðu rými.
Mér þykir þetta stór áfangi hjá honum. Að verða táningur. Miklu merkilegra en að fermast. Sem mér finnst b.t.w. alls ekki merkilegt.
Enda keypti ég afmælisgjöfina mína til hans í dag og svei mér ef hann verður ekki ánægður með hana. Hann veit hann fær síma. Það var samið um það frekar en einnota 'event'. Gamli síminn hans löngu orðinn klikk og virkar bara á góðviðrisdögum.
Elsku karlinn. Gerði ekki miklar kröfur og hann er nú ekki eins tæknilega sinnaður og gamli fauskurinn, pabbi hans. Lítillátur hvað það varðar. Systir hans fékk öll tæknigenin.
En eftir að hafa hlerað hann aðeins fann ég síma sem ég veit hann verður hæst ánægður með. Byggði valið á mínum kröfum, sem ég veit fyrir víst að eru mun meiri en hans kröfur. 'Ógisslega flottur'. Minn er bara þarmur við hliðina á þessum.
Svo förum við út að borða. Ég, hann og systir hans, en vitanlega fær hann að velja staðinn. Það verður pottþétt ekki súrt slátur á boðstólnum. jess!!!!
Til hamingju með daginn, elsku hjartans Logi Fannar minn.
Athugasemdir
Til hamingju með fyrsta unglinginn þinn, ég er atvinnumanneskja í því að ala upp unglinga!!! Minn 5. unglingur er viðfangsefnið mitt núna og bara eitt eftir hjá mér, ein sem vonar að hún lifi það af
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 21.5.2008 kl. 01:43
góða skemmtun ég ætla líka að njóta eiga gelgjur
Brjánn Guðjónsson, 21.5.2008 kl. 01:55
Hey Kappi - til hamingju með litla boxarann! Eigðu ljúfan dag og bon appitit í kvöld með unglingunum þínum. Knús í afmælisdaginn!
Tiger, 21.5.2008 kl. 13:15
til hamingju með drenginn en hvað ert þú gamall vinur? ertu ekki bara stráklingur?
Ingunn Valgerður Henriksen (IP-tala skráð) 21.5.2008 kl. 13:28
jú, ég er náttúrulega bara unglamb
Brjánn Guðjónsson, 21.5.2008 kl. 14:19
þá enginn sauður ahha en aldurinn hvað ertu gamall?
Ingunn Valgerður Henriksen (IP-tala skráð) 21.5.2008 kl. 14:22
ég er 38 vetra
Brjánn Guðjónsson, 21.5.2008 kl. 14:26
ha? nú bullarðu drengur....
Ingunn Valgerður Henriksen (IP-tala skráð) 21.5.2008 kl. 14:32
fæddur 1970? heyrðu maður nú er ég alveg rugluð man. sendu mér e-mail.... ingvalg@hotmail.com
Ingunn Valgerður Henriksen (IP-tala skráð) 21.5.2008 kl. 14:34
djók. Til hammó með drenginn
Ingunn Valgerður Henriksen (IP-tala skráð) 21.5.2008 kl. 14:53
Hæ hæ Brjánn,
Innilegar hamingju óskir með drenginn þinn, já tíminn líður sko hratt....minn litli nýfæddi varð fimm ára núna 17.maí heheh, Eigið góðan dag saman þú og börnin þín,æj þau eru svo dýrmæt þessar elskur. Takk fyrir innlitið hjá mér,sjáumst síðar blleeessss í bili góði
Gud-runa (IP-tala skráð) 21.5.2008 kl. 18:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.