Ísland sigurstranglegt?

„Við getum alveg unnið á laugardag“ sagði Friðrik Ómar, í samtali við fréttamenn. Þetta er tæknilega rétt hjá honum, þar eð lokakeppnin hefur ekki enn farið fram og því eru öll lögin, 25 að tölu, jafnlíkleg til sigurs. Hinsvegar, samkvæmt veðbönkum, eru íslendingar ekki líklegir til sigurs. Um er að ræða þessa sömu gömlu veðbanka, oftast breska, sem áður hafa spáð Gleðibankanum, Sókratesi, Hægu og hljóðu, og öðrum íslenskum 16.-sætislögum velgengni. Oftast spá þessir sömu, bresku, veðbankar bretum sigri. Sama hvaða krapp þeir bjóða álfunni upp á. Fyrir stuttu var Írski páfagaukurinn Magnús efstur á lista hjá þeim.

Svo það er best að bíða bara og sjá. Spara sér veðmálin og nota heldur peninginn í eitthvað annað. Til dæmis í ölkassa, eða svo, eins og sönnum Íslendingum sæmir.


mbl.is Ísland verður 11. í röðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Það er nú ekki hlustandi á þetta án öls

Hólmdís Hjartardóttir, 23.5.2008 kl. 01:59

2 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

og eftir því sem meira öl er innbyrt, þeim mun ofar lendir íslenska lagið. svo...bara að standa sig sko.

Brjánn Guðjónsson, 23.5.2008 kl. 02:02

3 identicon

Jamm, þá verður sko hellt í sig, ekki á hverjum degi sem að maður fær svon góða afsökun fyrir því að hella í sig, konan getru ekki einu sinni sagt neitt við því .

En ekki getur þú helt í þig Brjánn minn þá, þar af leiðandi verður þú að hlusat á þetta edrú, greið þú!  en þú hefur þó alla vegna börnin þín hjá þér til þess að hugga þig.

Steini tuð (IP-tala skráð) 23.5.2008 kl. 10:52

4 Smámynd: Nanna Katrín Kristjánsdóttir

Þau eru nýju Sigga og Grétar í stjórninni.  Hljóta að taka þetta.

Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 23.5.2008 kl. 11:50

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

já eða kaupa Lindubuff fyrir allan peninginn.  Lalalalalala

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.5.2008 kl. 12:24

6 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

já, ætli ég skelli mér ekki bara í Lindu-buffið

Brjánn Guðjónsson, 23.5.2008 kl. 12:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband