Þriðjudagur, 3. júní 2008
Bilun í kauphöllinni í Stokkhólmi
Sænski verðbréfamarkaðurinn Nasdaq OMX mun ekki hafa opnað fyrr en á hádegi í dag (10 að íslenskum tíma) vegna bilunar starfsmanns.
Að sögn Carl Norell framkvæmdastjóra kauphallarinnar mun Gösta Svenson, yfirmaður tölvudeildar, hafa snapped, eins og Norell orðaði það við fréttaritara Bergmálstíðinda.
Hann hljóp um húsið á brókinni. Öskrandi, að hér muni enginn kaupa einn einasta snepil í dag!! sagði Norell.
Mun ástæðan hafa verið tölvuveira, sem náði að smita nokkra starfsmenn tölvudeildarinnar í nótt, þ.á.m. Gösta Svenson. Viðgerð mun vera lokið og starfsemin komin í samt lag.
Bilun í kauphöllinni í Stokkhólmi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Facebook
Athugasemdir
Ertu að meina þetta (skelfingarkall) Hehe.
Jenný Anna Baldursdóttir, 3.6.2008 kl. 16:03
alveg satt
Brjánn Guðjónsson, 3.6.2008 kl. 16:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.