Fíkniefnafundur á Seyðisfirði

Landsamtök aðila að fíkniefnasölu, LAF, settu landsfund sinn í félagsheimili Seyðisfjarðar í gær. Fundurinn er vel sóttur. Saman koma þar helstu innflytjendur og dreifingaraðilar. Gestafyrirlesarar koma bæði frá tollgæslu og lögreglu. Fíkniefnahundurinn Kolur hélt áhugaverðan fyrirlestur um greiningu fíkniefnalyktar í gær. Landsfundurinn stendur fram á sunnudag. Þá verður honum slitið á táknrænan hátt, með að feit jóna verður látin ganga milli þingfulltrúa.


mbl.is Fíkniefnafundur á Seyðisfirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þú drepur mig maður. Hahaha.  LAF

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.8.2008 kl. 16:15

2 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Hvur fjárinn, og enginn fjölmiðlafulltrúi.

Ester Sveinbjarnardóttir, 22.8.2008 kl. 21:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband