Verði ljós

Ljósmæður sjá nú fram á að þurfa að beita þeim neyðarrétti sem verkfallsaðgerðir eru.

Ljósmæður hafa nú lagt til að öllum fæðingum verði hætt, eða þeim frestað um óákveðin tíma. Barátta ljósmæðra hefur staðið yfir lengi, án þess þær hafi fengið hljómgrunn veskishafa, fjármálaráðherra.

Bergmálstíðindi hafa heimildir fyrir að Samtök Ljósálfa muni styðja baráttu systursamtaka sinna, Samtaka Ljósmæðra.

Sömu heimildir herma að Samtök Ljósálfa munu standa fyrir mótmælafundi á Austurvelli á morgun, þar sem fram mun fara ljóstillífun í boði hússins, eins og það er nefnt í fundarskrá.


mbl.is Vilji ljósmæðra að semja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Allar konur verða að setja fæturnar í kross. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 2.9.2008 kl. 02:14

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Nú er bara að loka öllum öllum  götum.   Þær  eiga sannarlega skilið betri laun þó að þær séu konur..........

Hólmdís Hjartardóttir, 2.9.2008 kl. 02:26

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Sennilega  hefði dugað að segja "öllum" einu sinni

Hólmdís Hjartardóttir, 2.9.2008 kl. 02:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband