Föstudagur, 26. september 2008
Hraðfrystihúsið Íbó
Íbúðalánasjóður leyfir viðskiptavinum sínum að frysta lán í allt að þrjú ár vegna greiðsluerfiðleika.
Það minnir mig á nokkuð, fyrir nokkrum árum síðan. Þá var smá brekka hjá mér, fjárhagslega. Eitt af því sem þá var reynt var að biðja um frystingu láns hjá Íbó. Nokkrum dögum síðar barst mér bréf þar sem mér var tilkynnt að ekki væri hægt að verði við beiðninni þar sem ég hefði of lágar tekjur.
Aha, nákvæmlega.
Ég varð of kjaftstopp til að hringja og spyrja á hverju þau væru þarna niðurfrá. Verst þykir mér að hafa asnast til að henda umræddu bréfi, í stað þess að ramma það inn.
Gæti bjargað fjölskyldum frá gjaldþroti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ertu ekki að grínast? Of LÁGAR tekjur til að fá frystingu.
Ragnhildur Jóhanna Barðadóttir, 26.9.2008 kl. 17:03
Já og ég þekki mann sem fyrir mörgum árum ætlaði að innrita sig í Tónskólan til að læra að lesa nótur (múin að vera í músik lengi þegar þar var komið sögu) og hann fékk ekki inngöngu. Af því að hann kunni ekki að lesa nótur.
Ergo: Fokkings catch 22.
Jenný Anna Baldursdóttir, 27.9.2008 kl. 10:43
Borga hátekjuskatt þá færðu allt..
Gulli litli, 27.9.2008 kl. 10:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.