Verslunarstjóri óskast

Little blueGlervöruverslun Íslands leitar að verslunarstjóra. Viðkomandi þarf hvorki að að hafa þekkingu á glervörum né meðhöndlun þeirra. Nægir að viðkomandi hafi pólitískan feril að baki.

Ráðningarsamningur verður gerður til óskilgreinds tíma, þar til verslunin fer í þrot eða viðkomandi kýs að láta af störfum að eigin ósk. Hvort heldur verður á undan.

 

Umsóknareyðublöð liggja hvergi frammi, en hringt verður í þá er til greina koma.

 

Glermálaráðuneytið.


mbl.is Vill seðlabankastjórana burt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: corvus corax

Ég hlýt að fá djobbið, ég er með meðmæli frá Hannesi H G......

corvus corax, 9.10.2008 kl. 12:18

2 identicon

Þá má nú með sanni segjast að Davíð Oddsson hafi nú hagað sér eins og "fíll í glervörubúð" í þessu máli öllu saman.

Magnús Orri Einarsson (IP-tala skráð) 9.10.2008 kl. 12:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband