Laugardagur, 8. nóvember 2008
Smá málfræðifasismi
Þar sem ég hafði öðrum hnöppum að hneppa í dag, verð ég að láta duga að mótmæla heima í sófa og fylgjast með stemmningunni í miðbænum, gegn um netið.
En þá að fasismanum. Það er einn útbreiddur ósiður sem ég get auðveldlega látið pirra mig, á góðum degi. Þegar talað er um jógúrt í hvorugkyni og sagt það jógúrtið.
Í viðhangandi frétt segir, Alþingishúsið sé útatað í eggjum og jógúrti.
Jógúrt er kvenkynsorð og því er húsið atað jógúrt.
Annars ætti fólk heldur að borða hana því hún er bæði holl og góð.
Geir Jón: Lítið má út af bregða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Jógúrt er tökuorð og þess vegna er fólki frjálst að setja það í hvaða kyn sem því finnst þægilegast...
dacope (IP-tala skráð) 8.11.2008 kl. 17:18
á þeim tíma sem erlent orð er tekið inn í málið myndast kyn þess. hefði orðið verið í upphafi notað í hvorugkyni, væri það vitanlega hvorugkynsorð í dag.
jógúrt er hinsvegar rótgróið íslenskt orð í dag, sem kvenkynsorð.
þótt orð séu upphaflega tökuorð, sem líklega hafa flest verið meira og minna í upphafi, er það engin réttlæting á að þeim sé nauðgað. tökuorð eru líka orð og eiga sinn tilverurétt.
Brjánn Guðjónsson, 8.11.2008 kl. 17:54
Hann sá um þetta fyrir okkur.
Thee, 8.11.2008 kl. 18:17
Æi hann er feiminn.
Thee, 8.11.2008 kl. 18:17
fokkaðir upp myndinni. þú reddar þessu
Brjánn Guðjónsson, 8.11.2008 kl. 19:18
Hér er mynd af skrílnum.
Thee, 8.11.2008 kl. 20:40
Stjáni óeirðaseggur?
Brjánn Guðjónsson, 8.11.2008 kl. 20:47
Já sá er ruddinn. Hann heimtaði að fara í hermannabuxur en ég leyfði honum ekki að taka byssuna með.
Thee, 8.11.2008 kl. 20:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.