Hve margir þurfa að deyja

Aþjóðasamfélagið er ekki tilbúið að horfast í augu við, að það sem Ísraelsmenn eru að gera Palestínu-aröbum er í litlu frábrugðið þeirri meðhöndlun sem gyðingar hlutu í þriðja ríkinu.

Við skulum ekki missa okkur alveg þó. Einhver myndi spyrja hvort útrýmingarbúðir væru starfhæfðar í Ísrael.

Nei, svo er ekki. En níðingsskapur gegn gyðingum, í þriðja ríkinu einskorðaðist ekki við útrúmingarbúðir. Hann hófst formlega á nótt hinna löngu hnífa, árið 1934. U.þ.b. 8 - 10 árum áður en útrýmingarbúðirnar voru stofnsettar.

Þau 8 - 10 ár máttu gyðingar í þýskalandi búa við fyrirlitningu og smán. Konum og stúlkum nauðgað, án þess að neitt þætti sakhæft við það. Tíu ára kúgun og undirok, áður en gasklefarnr komu til sögunnar.

Sama ástand ríkir nú á Gaza og vesturbakkanum. Engir gasklefar. Nei. En ástandið svipað og var fyrir gyðinga á fjórða áratugnum í Þýskalandi.

Nauðganir, yfirgangur og annað ofbeldi.


mbl.is Ísraelar frömdu voðaverk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Í Þýskalandi og víðar.

Brynjar (IP-tala skráð) 20.3.2009 kl. 01:29

2 identicon

ég er samála þer Brjánn.. og það er rett hja Brynjar-i það var ekki bara i þyskalandi sem gyðingar voru hataðir og drepnir fyrir að vera gyðingar það er talið að josep stalín hafi látið drepa jafnmikið ef ekki meira af gyðingum fyrir og i byrjun WWII 

The Soviet Story mæli með henni nyj mynd sem er á netinu getið downloadað henni

jon hjalpar (IP-tala skráð) 20.3.2009 kl. 02:28

3 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

Forystumenn Ísraela hafa það í hendi sér að semja frið. Þeir stjórna atburðarásinni. Til þess að skilja ástandið þá verða menn að gera sér grein fyrir þeirri ógnvænlegu staðreynd er að þetta er allt með ráðum gert. Og hefur aðeins einn tilgang. Allt sem er ákveðið af stjórnum Ísrael miðar að því að hreinsa svæðið af óæskilegu fólki, með öðrum orðum: þjóðernishreinsanir. Allt friðarhjalið miðar að þessu sama takmarki. Að halda eitthvað annað er blekking.Ísraelsstjórnir vinna að því að gera lífið að slíku helvíti fyrir Palestínumenn að þeir hrökklist burt. Svo þegar þær fá andsvör við ofbeldinu eru þau notuð til að réttlæta enn harðari aðgerðir. Enn frekara helvíti. Þetta er liður í djöfulleguri áætlun um útrýmingu heillar þjóðar.

Hjálmtýr V Heiðdal, 20.3.2009 kl. 11:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband