Með Bauga undir augum

Með réttu má segja, að frétt um 30 milljóna styrk FL Group til Sjálfstæðisflokksins hafi vakið taugatitring innan flokksins. Miðstjórn hans kom saman í dag, á krísufundi.

Forystumenn flokksins hafa lítið vilja tjá sig um málið að öðru leiti en að vísa í þá frægu bók, Litlu gulu hænuna.

Þó náði fréttamaður tali af ónefndum miðstjórnarmanni nú áðan. Hann segir taugatitringinn mikinn.

„Engum miðstjórnarmanna kom dúr á auga í nótt, af stressi. Þetta er náttúrulega agalegt svona rétt fyrir kosningar. Síðan höfum við setið vansvefta og geyspandi á krísufundi í allan dag. Enda erum við öll með Bauga undir augum.“


mbl.is Miðstjórn Sjálfstæðisflokks sat á fundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband