Sjónarmið karla komast ekki að

Áhugafólk um kvenréttindi vill koma á framfæri óánægju sinni með hve lítið körlum er hleypt að í umræðum um kvenréttindi.

Máli sínu til stuðning bendir það á að framkvæmdastjórn og framkvæmdastjóri Kvenréttindafélagsins eru allt konur og aðeins einn karl sitji í aðalstjórn þess. Samtals, af þrettán stjórnendum félagsins sé einn karl á móti tólf konum.

Þetta sé ekki til þess fallið að hugmyndir og viðkorf karla fái hljómgrunn í umræðunni, þrátt fyrir að að íslenskar konur framtíðinnar séu dætur karla jafnt sem kvenna þessa lands.


mbl.is Sjónarmið kvenna komast ekki að
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eygló

Mér finnst oft eins og samfélagshópar; t.d. konur og samkynhneigðir, sem hafa barist fyrir rétti sínum og jafnrétti á við aðra hópa (sem er stórkostlega gott mál), hafi farið fram úr sér, og okkur, og hafi náð forréttindum. Amen.

Eygló, 4.11.2009 kl. 11:37

2 identicon

Brjánn farðu bara og fáðu þér súpu  !!!

"....KRFÍ boðar til súpufundar fimmtudaginn 5. nóvember nk. kl. 12.00-13.00 á Hallveigarstöðum við Túngötu 14 í Reykjavík undir yfirskriftinni. Sýnileiki kvenna í fjölmiðlum á kosningaári. "

Jóka (IP-tala skráð) 4.11.2009 kl. 14:44

3 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

já, það væri ekki galið að fá sér bara kvenréttindasúpu :)

Brjánn Guðjónsson, 4.11.2009 kl. 18:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband