Ammæli

Vonandi er stuð og stemmning í partíinu. Í tilefni dagsins ætla ég að skrölta niðr'í Smáralind að kaupa mér ullarsokka og pulsur. Nema hvað?
mbl.is Fjölmenni í sextugsafmæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjónvarpsmanni?

Hvers vegna þurfti lögreglan að fá aðstoð sjónvarpsmanns við æfinguna? Er erfiðara fyrir hundskvikindið að finna þetta á sjónvarpsmönnum en lögreglumönnum? Nú eða útvarpsmönnum og blaðafulltrúum. Stöðuvörðum og baðvörðum.

Bara pæling.
mbl.is „Böst“ í Leifsstöð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

blog.is

Hvernig væri að moggamenn létu laga þennan blogvef sinn? Eftir að hafa innskráð mig og farið í stjórnborð og vel síðan blog.is eða mbl.is, vinstra megin uppi, þarf ég alltaf að innskrá mig aftur til að komast í stjórnborðið mitt á ný. Frekar glatað.

Hvað eru öfgar?

Væntanlega hafa bresk yfirvöld skilgreint það. Mér leikur forvitni að vita hvort einungis terroristar falli undir þá skilgreiningu, eða hvort fleiri hópar sem vissulega eru öfgahópar (í mínum huga a.m.k.) falli þar undir líka. Allir strangtrúaðir hópar, kristnir sem múslimar. Femínistar. Sum samtök umhverfissinna. lengi mætti telja, en í raun falla allir fanatíkusar í þennan flokk.
mbl.is Ráðast gegn öfgavefsíðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Apologize

Á s.l. miðvikudagskvöld poppaði lag í hausinn á mér, algerlega upp úr þurru. Lagið hljómaði í hausnum á mér, en ég mundi hvorki heiti lagsins né flytjandans. Ég mundi bara að lagið hafði verið vinsælt í fyrra. Mig langaði strax að leika mér eitthvað með þetta lag, en til þess þurfti ég auðvitað að hafa upp á laginu. Ég hófst handa við að fálma í myrkri internetsins að lagi sem ég vissi ekki hvað héti, hvað þá meir. Ég reyndi að muna hver flytjandinn væri, en án árangurs. Mörg nöfn komu upp í hugann. Eftir að hafa fundið Billboardlista yfir vinsælustu lög ársins 2007 tókst mér, ásamt með aðstoð youtube.com, að finna lagið. Lagið heitir Apologize og flytjandinn kallar sig Timberland.

Ég hófst handa við að saga lagið í búta og hef verið að kroppa í það annað slagið síðan. Ég notaði á það buffhamarinn, setti það í marineringu og var óspar á kryddið. Nú hef ég tekið lagið úr marineringu og borið fram, hér til vinstri. Vesgú.

Please accept my apology, for 'my apologize', Mr. Timberland.


Bæjarins bestu.

Með fullri virðingu fyrir þessari ágætu konu.

Mér finnst skondið þetta með að útnefna bæjarlistamenn, bæjarskáld og slíkt. Svona tilbúnar jötur fyrir útvalda. Bæjarins bestu. Ég geri hér með tilkall til titilsins bæjarfjasari Reykjavíkurhrepps.


mbl.is Útnefnd bæjarlistamaður Seltjarnarness
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Með hausinn upp í rassgatinu.

Jahhá!

Bandaríkjamen hafa sumsé aldrei fjármagnað skæruliða og hryðjuverkamenn í 'óvinveittum' ríkjum, né grafið undan friði í öðrum ríkjum og álfum (með slíku hátterni)? Vitanlega hafa þeir aldrei selt skæriliðum vopn, ha?

Þarf ekki einhver að taka hausinn úr rassgatinu sínu og fara að sjá heiminn?


mbl.is Íran „ógnar öryggi allra“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju mamma!

Í dag, 10. janúar, hefði yndisleg móðir mín orðið 69 ára. Þótt hún sé horfin héðan lifir hún enn, í hjarta mínu. Til hamingju með daginn mamma.

Hillarious

Þótt ég sé ekki áhugamaður #1 um bandarísk stjórnmál, fannst mér gaman að sjá þessa frétt. Það er nefnilega þannig að hvort sem mér líkar betur eða verr, hafa kanarnir það mikil áhrif á heimsmálin að þetta snertir okkur öll.

Ég vona að Hillary Clinton verði næsti forseti bandaríkjanna. Ég treysti henni best til þess að breyta utanríkisstefnu bandaríkjanna frá því að vera vitfirrt hernaðarbrölt, uppfullt af trúarofstæki, í að vera eitthvað vitrænt. Þar sem manneskjan er sett ofar olíu og viðskiptahagsmunum.

Draumórar kannski, en það er gaman að dreyma.


mbl.is Clinton vann í New Hampshire
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mun ég starfa í fuglabjargi?

Eflaust mun talskynjun halda áfram að þróast og tölvur munu líklega, á endanum, geta skilið talað mál nær fullkomlega. Það er hið besta mál og mun koma sér sérstaklega vel fyrir fatlaða. Ég sé samt ekki fyrir mér að lyklaborðið hverfi, enda yrði ekki nokkur vinnufriður á vinnustað eins og mínum, þar sem margir forritarar eru saman í opnu rými. Allir blaðrandi við tölvurnar sínar.
mbl.is Gates: Tölvunotkun mun breytast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband