Viðsnúningur

Ég hef löngum verið þeirrar skoðunar að það séu kostir í fari fólks að geta skipt um skoðun, verði eitthvað til að knýja á um það.

Ég hef verið þeirrar skoðunar að skárst væri að ganga að Icesave samkomulaginu og geta snúið sér að öðru eftir samþykkt þess.

Ég skráði mig ekki á lista InDefence.

Eftir ákvörðun forsetans hef ég æ meir hallast að því að þetta hafi verið snilldar 'move'.

Ég viðurkenni að í fyrstu var mér ekki um sel, en eftir að hafa séð að bretar, hollendingar, ásamt öðrum virtust ekki hafa meira vit á málinu en ég á matvælafræði, sá ég að þau æðu villu og svíma sem hægt væri að leiðrétta. Óupplýst lið sem annaðhvort taldi að íslendingar ætluðu ekki að standa við alþjóðlegar skuldbindingar, eða að héldu að forseti íslands hefði neiturnarvald, a'la France og USA. Bullukollar sem blogguðu án þess að vita rassgat um hvað þeir væru að tala um.

Það er nægt framboð af bjánum í heiminum. Það er eitt að því fáa sem við getum treyst á.

Nú hef ég séð að almenningur erlendis er að sjá hverslax rugl er í gangi. Undantekningin eru danir. Enda eru þeir enn grútspældir yfir Magasin du Nord. Megi þeir ná sér úr sinni gremju sem fyrst.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

2 Smámynd: hilmar  jónsson

Voðalegur vindhani ertu maður. Ein skoðun í dag og önnur á morgun,,,nei djók..

Það sem pirrar mig varðandi ákvörðun forsetanns ( vonandi megi hún þrátt fyrir allt vera til góðs )

Er að ég held að lýðræðisástin ein hafi ekki alveg ráðið för. Ímyndin var orðin slöpp og eitthvað varð að gera, og sjá: Allt í einu er kappinn kominn á top 1 vinsældarlista náhirðarinnar og meira að segja Hannes H. Björn Bjarna og DO ná ekki sameiginlega að vellta honum úr sæti.

Fólki hefur orðið flökurt af minna tilefni..

hilmar jónsson, 7.1.2010 kl. 22:36

3 Smámynd: Haraldur Hansson

Skemmtileg færsla.

Helst vildi ég taka málið lengra. Setja ný lög um breytingar á septemberlögunum þar sem sett væri inn fortakslaust skilyrði að fá skorið úr um ábyrgð að lögum. Bara prinsipp atriði.

Fámenn þjóð á ekki að þurfa að láta undan yfirgangi stórþjóðar. Það á að semja á sanngjörnum grunni og virða lög. Síðan borgum við það sem okkur ber, að lögum, á forsendum sem við ráum við. Punktur.

Haraldur Hansson, 7.1.2010 kl. 22:47

4 Smámynd: hilmar  jónsson

Auk þess sem hann sýnir mikið virðingarleysi gagnvart þeirri 1 árs vinnu sem fram hefur farið við undirbúning Icesave málsins, vitandi ekkert um afleiðingarnar af þessari ákvörðun þegar til langs tíma er litið.

hilmar jónsson, 7.1.2010 kl. 22:57

5 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Hilmar - þ.e. allt of mikið um fullyrðingar, en heldur minna um rökstuðning.

Ég er farinn að hallast að því, að meira jákvætt komi úr þessu en neikvætt - en, skoðaðu erlendur greinarnar er ég linka á í nýustu bloggfærslunni minni.

Þetta getur alveg eins verið tækifæri.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 7.1.2010 kl. 23:12

6 Smámynd: Eygló

Núna standa Íslendingar saman, vinstri og hægri, gegn sameiginlegum fjanda. Misskilningurinn í heimsbyggðinni verður þar með til góðs. Sjáið til!

Annars skil ég ekki ennþá hvers vegna ekki er hægt
*  að komast að því hvort Ísl. beri yfir höfuð að greiða þetta m.t.t. umfangs bankafallsins. Sagt er að ekki hafi verið meiningin að tr. næði yfir svo stórt fall margra banka; væri öryggisnet fyrir "minni háttar" þ.e. minni háttar EN þessi ósköp.

*  já/nei
verði svarið "já" hlýtur næsta skref að verða tekið en ekki fyrr. Hvers vegna í ósköpunum er rembst við að semja um afborganir af "láni/skuld" sem ekki er 100% að eigi að greiða???

En ég er nú bara fávís og þar að auki kona, reyndar edrú en það hjálpar víst lítið :)

Eygló, 7.1.2010 kl. 23:36

7 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Vil vekja athygli á þessu:

Hver íslendingur þarf að bera 2,4 milljónir Kr. á meðan að hver hollendingur eða breti þarf að borga 10 þúsund Kr. per haus - ef þeir bera kostnaðinn.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 7.1.2010 kl. 23:45

8 Smámynd: Eygló

Einar, skyldi þetta koma fram í útvarpi og blöðum þessara þjóða? Það væri til mikils að vinna.

Eygló, 7.1.2010 kl. 23:54

9 Smámynd: Eygló

Annað sem er "skemmtilegt" - innstæðueigendur XXXXXXX voru um 300.000 (í báðum löndum held ég) Þannig má leika sér með það að hver einasti Íslendingur; að meðtöldum smábörnum, gamalmennum, sjúklingum og öryrkjum SJÁI UM EINN viðskiptavin Landsbankans. Já, þetta er rosalega "skemmtilegt"

Eygló, 7.1.2010 kl. 23:57

10 identicon

ÓRG á Fálkaorðuna skilið :)

Jóka (IP-tala skráð) 8.1.2010 kl. 00:02

11 Smámynd: Steingrímur Helgason

Brjánzi, minnz er ztoltr af þinnz...

Steingrímur Helgason, 8.1.2010 kl. 01:08

12 Smámynd: Eygló

Getur hann ekki fengið Sigga Einars eða Jóns Ásgeirs...?  Þær virka eins og hrákaklessa á þeim.

Eygló, 8.1.2010 kl. 02:09

13 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

an vera vinhani er mitt aðalsmerki

Brjánn Guðjónsson, 8.1.2010 kl. 14:14

14 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

vissulega var þetta leið fyrir hann að bjarga andlitinu. þó finnst mér ég skynja fleira í þessu. hann hefði örugglega fundið leið til að staðfesta lögin og færa fyrir því rök, hefði hann kosið það. held hann hafi séð það fyrir að með þessu var hann að skora þrjú mörk.

bjarga andlitinu. bregðast við áskorunum almennings og að klekkja á sínum pólitísku andstæðingum í sjálfstæðisflokknum.

auðvitað vissi hann fyrir að væl þeirra um þjóðaratkvæðagreiðslu var bara lýðskrum.enda hafa þeirr bakkað með það nú, hver í kapp við annan og opinberað fyrir alþjóð að þeira hafa buxurnar á hælunum.

Brjánn Guðjónsson, 8.1.2010 kl. 14:19

15 Smámynd: Eygló

Pæling, en fannst þér þetta ekki koma verr við VG og Samf. heldur en xD?

Eygló, 8.1.2010 kl. 14:40

16 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

nei, í raun ekki. smá spæling hjá þeim fyrst, virtist vera, en þau jöfnuðu sig furðu fljótt.

Brjánn Guðjónsson, 8.1.2010 kl. 15:25

17 Smámynd: hilmar  jónsson

Halló ? ?

hilmar jónsson, 8.1.2010 kl. 15:28

18 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

já, sæll Hilmar. gjörðu svo vel og gangtu í bæinn.

Brjánn Guðjónsson, 8.1.2010 kl. 15:32

19 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Brjánn; það eina sem ég vil segja við þig er þetta;  þú virðist einlægur og heiðarlegur maður, sem þráir heitt að lifa í sátt við menn og dýr, eins og flest okkar.

Það sýnir líka styrk þinn og heilindi að geta skipt um skoðun, eins og þú sjálfur telur réttlátt og skynsamlegt.

Hneigi mig og kinka kolli til þín.

Jenný Stefanía Jensdóttir, 8.1.2010 kl. 18:49

20 Smámynd: Eygló

Aðeins þverhausar og þurs skipta ekki um skoðun "þegar nýtt kemur fram í málinu"

Eygló, 8.1.2010 kl. 18:58

21 Smámynd: hilmar  jónsson

Are you talking to me ?

hilmar jónsson, 8.1.2010 kl. 19:06

22 Smámynd: hilmar  jónsson

Ég skal éta ofan í mig skoðun mína á því að Ólafur hafi farið offari, þegar það blasir við að ákvörðun hans hafi verið heillaspor í stöðunni.Sorry, er ekki farinn að sjá það enn..

Ljóst er að þarna skapaðist kjörið tækifæri hans til þess lappa upp á fallandi vinsældir og endurnýja vinsældarmarkhópinn.

Hræddur er ég þó um að sá hópur muni endast honum álíka lengi og hlýjan af því að pissa í eigin skó.

En það er kristaltært að maðurinn kann að haga sínum pólitísku seglum eftir vindum.

hilmar jónsson, 8.1.2010 kl. 19:19

23 Smámynd: Eygló

Hilmar, nú veit ég ekki hvort þú yrtir á mig. Ef svo var, þá var ég að svara/jánka fyrstu efnisgrein síðueigandans : )

Eygló, 8.1.2010 kl. 21:52

24 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

ég þakka hlý orð í minn garð, Jenný

Brjánn Guðjónsson, 9.1.2010 kl. 01:01

25 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Lesið endilega þessa grein:

Financial Times, eftir "Michael Waibel, British Academy Postdoctoral Fellow, Lauterpacht Centre for International Law, University of Cambridge, UK."

Iceland has no clear legal obligation to pay up

"What is often overlooked amid this unfolding drama is that Iceland is under no clear international legal obligation to pay up - a fact that Fitch’s premature downgrade of Iceland’s credit rating on January 5 also overlooks. The UK would likely face substantial obstacles in court. The chance of winning is no more than 60 per cent, and even then the UK is very unlikely to obtain more than in this settlement."

"A protracted legal battle is in nobody’s interest. Yet the UK and the Netherlands need to start showing a genuine willingness to compromise, rather than using political leverage points in the International Monetary Fund and elsewhere to their maximum advantage. Any negotiated agreement should reflect the uncertainty of how much Iceland is liable to pay in the first place. This uncertainty should be reflected in a substantial discount on the principal, together with a reasonable interest rate."

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 9.1.2010 kl. 01:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband