Er gróðureldi vonlaus atvinnugrein?

Það er von að menn spyrji sig þeirrar spurningar nú eftir nýjustu fregnir af gífurlegu tapi Gróðrastöðvar Hvaleyrar. „Það virðist ætla að verða með gróðureldi eins og fiskeldi“ segir Rúnar Geirfinnsson, framkvæmdastjóri GH. „Allt sem endar á eldi, endar eins og í eldi. Peningarnir fuðra upp“ bætir Rúnar við.

Bergmálstíðindi leituðu álits Ingimars Ögmundssonar, ráðgjafa, sem hefur sjálfur komið nálægt gróðureldi.

Aðspurður hvort hér á landi sé ekki rekstrargrundvöllur fyrir gróðureldi og þá hvers vegna, svarar Ingimar, „Nei, það er alveg ljóst að gróðureldi á Íslandi er dauðadæmt og fyrir því eru tvær megin ástæður. Fyrst og fremst er sú ástæða að Ísland er kulda- og rokrassgat og því er það hrein firra að reyna svo mikið sem að rækta einhverja jurt hér. Hin ástæðan er sú að Íslendingar kunna flestir ekki með peninga að fara og ættu að halda sig alfarið frá rekstri fyrirtækja, nema rekstrargrundvöllurinn sé tryggður. Svo sem eins og með flestan innflutning. Bíla- eða sælgætisumboð.“


mbl.is Mikið tjón í gróðureldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Auðvitað er mögulegt að eyðileggja allt sem mönnum dettur í hug og þarf ekkert eldi að koma til.

Í ræktun landsins felast ótal tækifæri og auðvitað þarf að nýta þau. Það þarf að hemja skemmdarverkamennina.

Kveðja

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 29.4.2008 kl. 13:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband