Mánudagur, 19. maí 2008
Biðin langa á enda
Mörg gömul harmonikku- og sjóarahjörtu tóku kipp í dag, er þær fréttir bárust að hljómsveitin Áhöfnin á Halastjörnunni hefði gefið út nýjan hljómdisk. Diskurinn, sem ber heitið Hrefnukvóti, hefur að geyma alls 10 lög. Öll eftir Gylfa Ægisson. Ýmsir gestasöngvarar leggja hljómsveitinni lið sitt á disknum. Þar má telja Bubba Morthens, Eyjólf Kristjánsson og Eyþór Arnalds. Sem fyrr syngja svo einnig þeir Rúnni Júl og Gylfi Ægis.
Rúnni Júl sagði, í viðtali við Bergmálstíðindi, liðsmenn sveitarinnar lengi hafa fundið fyrir þrýstingi að koma saman á ný. Þögnin var orðin þrúgandi segir Rúnni. Hvað efnistök texta disksins segir Rúnni örlitlar áherslubreytingar vera frá seinustu plötu, sem einungis kom úr á vínyl. Á síðustu plötu var meiri áhersla á síld og karfa. Nú erum við meira í stórfiskum og sjávarspendýrum. En auðvitað megin þemað, eins og áður, hve slor er rómó og maddsjó.
Hrefnukvóti gefinn út í dag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.