Sandskatan gerist stjórnmálaafl

Sandskatan, Samtök hagsmunaaðila að hagsmunasamtökum, hafa ákveðið að gera samtökin að stjórnmálafli. Samtökin munu starfa undir heitinu Hagræðisflokkurinn.

Stulli Jóns, trukkakall og talsmaður Sandskötunnar, segir stefnuskrána ekki fullmótaða. „Þó er ljóst að helstu stefnumál flokksins verða aukið frelsi í flautumálum, sérstakar akreinar fyrir trukka á vegum landsins og sérstakur mótmælendaafsláttur af eldsneyti“ segir Stulli jafnframt.

Stefnuskráin verður kynnt í næstu viku, á stofnfundi Hagræðisflokksins, sem haldinn verður á Olísstöðinni við Rauðavatn.


mbl.is Sturla stofnar nýjan stjórnmálaflokk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband