Jafnaðarmennska ríkisstjórnarinnar

Ríkisstjórn Íslands hefur beint þeim tilmælum að skuldarar myntkörfulána fái greiðslustöðvun, „sérstaklega vegna húsnæðislána“ en þó ekki eingöngu. Flokksgæðingar og góðir vinir fái einnig frystingu á jeppalánum sínum. Hinsvegar skuli aumingjarnir sem skulda hefðbundin verðtryggð lán halda áfram að borga.

Samkvæmt yfirlýsingu mun ástæða frystingarinnar vera tvíþætt. Í fyrsta lagi til að koma í veg fyrir greiðsluerfiðleika. Á hinn bóginn að veita skuldurum aukið svigrúm til að halda áfram og/eða auka neyslu, til að halda þannig uppi og/eða auka verðbólgu svo hinir minna metandi verðtryggu ræflarnir fái nú líka eitthvað til að vera andvaka yfir.

Þetta mun vera útfærsla ríkisstjórnarinnar á jafnaðarmennsku, segir í tilkynningu.


mbl.is Afborganir verði frystar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband