Astraltertugubb

Því má hér við bæta að fyrir tæpum þremur áratugum gerðist sá atburður hér á landi, að íslenskur söngflokkur varð vitni að heimsókn geimvera. Þetta átti sér stað seint að kvöldi, langt úti á landsbyggðinni. Meðlimir söngflokksins héldu fram að þeir hefði séð hinar frægu Kizu geimverur, er gjarnan sáust hafa í frammi undarlegar líkamshreyfingar í þá daga. Yfirvöld voru treg til að leggja trúnað á söguna, enda höfðu meðlimir söngflokksins stundað söng og hljóðfæraslátt sama kvöld. Það vildi nefnilega brenna við að við slík tækifæri innbyrtu menn of mikið af rækjusamlokum og maltöli. Auk þess höfðu þeir ekki myndir máli sínu til staðfestingar. Að lokum fékkst staðfesting á sögu þeirra eftir að þeir höfðu lagt fram astraltertugubb sem sönnun.
mbl.is Áhorfendur átu sönnunargagnið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.10.2008 kl. 08:25

2 Smámynd: Thee

Er þetta fyrsta Íranska skyndibitakeðjan sem telur fimmtánhundruð-metra?

Thee, 21.10.2008 kl. 08:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband