Laugardagur, 7. febrúar 2009
Samgönguráðherrar
Það var löngum sagt, í gamla daga, að utanríkisráðherrar mættu alls ekki koma úr röðum Alþýðubandalagsins. Það væri og hættulegt (!).
Á sama hátt virðist vera óskrifuð lög að samgönguráðherrar megi alls ekki koma úr röðum höfuðborgarbúa.
Leiðréttið mig, fari ég rangt með, en ég man ekki eftir reykvískum samgönguráðherra. Er ég þó orðinn vel hálfnaður í gamalmennaflokkinn.
Sturla Böðvarsson var samgönguráðherra. Nú gegnir því embætti Kristján malari. Báðir utan að landi.
Áður hafa setið í sama stóli, snillingar (!) eins og Halldór Blöndal.
Allt landsbyggðarþingmenn.
Enda jarðgöng í útnárum ævinlega sett í forgang, meðan þjóðþrifaverk eins og Sundabraut fá að reka á reiðanum.
Sturla og Herdís hætta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sturla minnir mig alltaf á Clusou
Siggi Lee Lewis, 7.2.2009 kl. 20:00
kannski jafn klaufalegur, en Clusou var fyndnari
Brjánn Guðjónsson, 7.2.2009 kl. 20:05
er það samgönguráðherrum að kenna að Reykvíkingar geta ekki með nokkru móti komið sér saman um hvernig eigi að leggja vegakerfið í höfuðborginni?
gattnamót kringlumýri-miklubrautar og síðan sundabraut eru dæmi þar sem ríkið beið og bíður ennþá.
Fannar frá Rifi, 7.2.2009 kl. 20:09
þú getur farið á vef Reykjavíkurborgar og séð þar skipulag svæðisins, með Miklubraut neðanjarðar að hluta.
Brjánn Guðjónsson, 8.2.2009 kl. 14:04
Sástu skilaboðin frá mér? Fyrsti hluti kominn inn!
Lára Hanna Einarsdóttir, 8.2.2009 kl. 16:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.