Þriðjudagur, 1. september 2009
Klaufafjárfestingar
Liðin er sú tíð, er tómir klaufar fjárfestu í öðrum klaufum. Það nýjasta í Frakklandi er að fjárfestar, klaufar eður ei, eru farnir að fjárfesta í nýrri gerð klaufa. Klaufdýrum.
Klaufdýrin eru af tegundinni Bos taurus, öðru nafni kýr. Þeirra helsti kostur er að þær framleiða ógrynni af mjólk, sem má nota til að búa til ís tað eins og segir í viðtengdri frétt. Ís tað, öðru nafni taðís, hefur náð miklum vinsældum í suðurhéruðum Frakklands.
Útlit hans þykir minna á súkkulaðiís. Engum sögum fer hins vegar af bragðinu.
Fjárfesta í kúm | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Kannski maður fjárfesti í kú með kú-lu-láni ?
Anna Einarsdóttir, 1.9.2009 kl. 21:10
með Möö-guleika á frystingu?
Brjánn Guðjónsson, 1.9.2009 kl. 22:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.