Föstudagur, 18. apríl 2008
Lausn í kjaradeilu flugfreyja?
Nú er kjaradeila flugfreyja og Icelandair í algjörum hnút og greinilegt að eitthvað stórkostlegt þarf til að koma svo hún leysist.
Rétt í þessu bárust Bergmálstíðindum fregnir af að ríkissáttasemjari hafi boðað fulltrúa Icelandair og samninganefnd flugfreyja til fundar, síðar í dag. Ekkert hefur verið gefið út um fundinn en Bergmálstíðindi hafa fyrir því áreiðanlegar heimildir að ríkissáttasemjari muni á fundinum leggja fram tímamótatillögur.
Munu helstu atriðin vera þau að flugfreyjum skuli frjálst að velja milli 38 og 40 den sokkabuxna, sem og að meira frelsi verði í litavali þegar kemur að varalitum og naglalökkum. Eins þurfi táneglur ekki að vera í sama lit og fingurneglur.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 18. apríl 2008
Bush and the brownie Brit
Eftirfarandi frétt fann blaðamaður Bergmálstíðinda í Herald Tribune. Teitur Margrétarson snaraði á íslensku.
You Brits are the good brownie nose of europe to us sagði Bush, forseti bananalýðveldis norður Ameríku, við formlega móttökuathöfn á flugvellinum í Tampa í dag. George W. Bush og Gordon Brown, eða The brownie Brit, eins og hann er kallaður í heimalandinu, áttu saman fund á búgarði forsetans bananíska, í Forth Laderdale. Bush vatnaði músum er hann lýsti yfir söknuði sínum með fráhvarf Toni Blairs. He was my dear puppy sagði Bush. Gordon Brown sagði við það tilefni að bretum stæði fyllilega fyrir aftan bak... að bretar stæðu fyllilega við bakið á bananamönnum.
![]() |
Bush og Brown segja samband landanna traust |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 02:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 18. apríl 2008
Samferðamenn í 100 ár
Ingi Ingason, fv vitavörður, hélt upp á 100 ára afmæli sitt nýverið. Þar voru saman komnir afkomendur Inga, aðrir ættingjar hans, samferðarmenn og vinir.
Aðspurður segist Ingi vera þakklátastur fyrir samferðamenn sína, að öðrum ólöstuðum.
Ég man alltaf vel eftir honum Sigurpáli, sem var samferða mér frá Húsavík til Akureyrar vorið 1941. Einnig er samferðamaður minn, hann Gunnar, á ferðalagi mínu frá Vík að Kirkjubæjarklaustri, minnisstæður segir Ingi með sæluglampa í augum. Sumarnóttin í Skaftafelli er eftirminnileg. Ekki síst vegna Helgu, sem heimsótti okkur Gunnar í tjaldið bætir Ingi við.
![]() |
Haldið upp á aldarafmæli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 15:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 18. apríl 2008
Hagaskóli Hreystursmeistarar 2008
Í kvöld lauk hinni árlegu hreysturskeppni grunnskólanna. Sigurvegarar í ár er lið Hagaskóla, Hreystursmenn.
Hörð barátta var um sigurinn og áttust þar við Hreystursmenn Hagaskóla, Síldarstofn Seljaskóla og Kolmunnafélag Korpuskóla.
Keppt var í fjórum greinum; línubeitningu, netagerð, flökun og löndun fram hjá vikt.
Hreystursmenn höfðu sigur í öllum greinum nema í löndun utan viktar, þar sem Slorfélag grunnskólans á Siglufirði hafði afgerandi sigur.
Rögnvaldur Þorvaldsson, liðsstjóri Hreystursfólks Hagaskóla var að vonum kátur í leikslok. Þetta er eins og blautur draumur sagði Rögnvaldur, sem enn var í skýjunum Blautur og slímugur, eins og nýflökuð ýsa sagði Rögnvaldur að lokum.
![]() |
Hagaskólanemar hraustastir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 02:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 18. apríl 2008
Bloggþema, nú og næst
Nú hef ég sinnst starfi ritstjóra Bergmálstíðinda sl. viku. Mér hefur hugnast starfið vel. Í upphafi var ætlunin að bergmála einungis á grámyglulegan hátt atburði líðandi stundar, eins og fyrsta færslan ber með sér. Merkilegt nokk, þá fékk ég eitt komment á þá færslu og það meira að segja málefnalegt. Reyndar stóðst ég ekki mátið að blása smá lífi í bergmálið og birta nýjar hliðar málanna.
Nú hef ég ælt úr mér færslum tengdum hinum og þessum fréttum. Fyndið að þrátt fyrir að lítið (ekkert) hafi verið kommentað hjá mér þessa vikuna sé ég að flettingar hafa stóraukist. Talandi um vinsæl blogg. Magnið tekið yfir gæðin.
Ég hef nú þegar ákveðið þema næstu viku. Yfir helgina get ég andað og fjasað. Síðan hefst næsta törn. Næstu viku ætla ég að keppa við ofurbloggara eins og þann sem hlýtur að vera bróðir Stebba Fr. Stefánssonar, Herbert Fr. Stefánsson. Látum vera hvort sá bloggari er raunveruleg persóna eður ei. Téður Herbert bloggar um flestar fréttir sem birtast á mbl.is. Mín keppni mun felast í því að ég mun blogga um allar fréttir sem birtast munu á mbl.is.
Ekki auðvelt og ég mun kannski ekki alltaf segja mikið, en allar fréttir skuli það vera.
p.s. samfara bergmálsbloggi þessa vikuna hef ég haft í frammi alhliða tónlistarlegan hommaskap sem finna má nú í spilaranum.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 17. apríl 2008
Samtök hagsmunaaðila að hagsmunasamtökum, stofnuð í kvöld
Bergmálað úr borunni #22
Nú í kvöld var haldinn stofnfundur Samtaka hagsmunaaðila að hagsmunasamtökum.
Um 80 manns sóttu fundinn. Á fundinum voru m.a. rædd álög Ríkisnorna á vöru- og steypubílstjóra. Eins og mönnum er enn í fersku minni lögðu Álaganornir ríkisins ohf þau álög á vöru- og steypubílstjóra, sl. haust, að þeim skyldu eigi koma dúr á auga eins og það var orðað í álagayfirlýsingu Ríkisnorna.
Samkvæmt nýlegri evróputilskipun mega nornir nú leggja álög á nýju og hálfu tungli, sem og á fullu tungli, en ekki eingöngu á fullu tungli eins og áður tíðkaðist.
Stofnfundur samtakanna ályktaði um áskorun til ríkisstjórnarinnar og Alþingis, þess efnis að sótt verði um undantekningu frá þessu nýja ákvæði evrópsku nornalaganna.
Mikil öryggisgæsla var á fundinum og var ma. leitað á öllum er gengu í salinn. Allir hálmstrákústar voru bannaðir með öllu, sem og keilulaga höfuðföt.
![]() |
Vel sóttur stofnfundur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 17. apríl 2008
Hraðbáta í stað Herjólfs
Bergmálað úr borunni #21
Félag áhugafólks um hraðflutninga hefur undanfarið staðið að undirskriftasöfnun til að mótmæla fyrirhuguðu ferjulægi í Bakkafjöru.
Jú jú, við vitum að það mun stytta siglingartímann en akstursleiðin lengist sem því nemur segir Magnús Kristinsson, útibússtjóri, talsmaður félagsins. Við viljum heldur að ferjan verði seld og í staðinn keyptir 50 fjögurra manna hraðbátar, sem sigldu milli Reykjavíkur og Eyja bætir Magnús við.
Kristján Möller ,samgöngumálaráðherra, veitti undirskriftalista félagsins móttöku í dag. Auðvitað skoðar maður alltaf svona lista segir Kristján. Mér þykir fátt jafn skemmtilegt en að hafa svona lista á náttborðinu, að lesa á síðkvöldum. Þó er listinn of seint fram kominn, eigi hann að breyta einhverju bætir Kristján við. Það dugar ekkert minna en flautugangur og fyrirþvælingur núorðið og varla að það dugi einu sinni. Svona listar eru sko alveg gersamlega jesterdei eitthvað segir Kristján að lokum og er með það sama rokinn á fund um Héðinsfjarðargöng.
![]() |
Of seint segir ráðherra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 17. apríl 2008
Góð reynsla af Grímseyjarferjunni
Bergmálað úr borunni #20
Í morgun voru opnuð, hjá Ríkiskauðum, tilboð í nýja Vestmannaeyjaferju. Tvö tilboð bárust. Frá Samskeytum hf og Vinnubúðum Vestmannaeyja. Tilboði Samskeyta var hins vegar vísað frá. Ekki hefur fengist uppgefið hver ástæða frávísunarinnar er, en heimildir Bergmálstíðinda herma að Samskeyti hafi verið alltof lágir og framkvæmdin þótt of praktísk og einföld.
Tilboð Samskeyta hljóðaði upp á splunkunýtt skip með öllum nýjustu og flottustu græjum og þægindum. Kostnaðurinn hljóðaði upp á fimm og hálfan milljarð.
Tilboð Vinnubúða Vestmannaeyja hljóðar upp á tólf milljarða. Þar er gert ráð fyrir að keypt verði 40 ára gamalt skip frá Úsbekistan, sem sett var í úreldingu þar ytra fyrir tveimur árum. Þá sé fyrirhugað að flytja það til Malaví og gera upp. Síðan verði því siglt hingað þar sem unnið verði við endurvinnu og breytingum á fyrri lagfæringu.
Bergmálstíðindi náðu tali af Bóasi Hallfreðssyni, talsmanni Vinnubúða Vestmannaeyja.
Það er ekki nokkur spurning að okkar tilboð var mun betra segir Bóas. Við erum að fá þetta fína Sovéska skip. Það að skipið er nú þegar í úreldingu gefur okkur færi á að fá það á mun betri kjörum en ella. Svo mun vinnan við það hér heima skapa fjölmörg störf. Við viljum byggja á góðri reynslu með Grímseyjarferjuna. segir Bóas að lokum.
Ekki náðist í forstjóra Ríkiskauða.
![]() |
Tilboð upp á tólf til sextán milljarða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 15:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 17. apríl 2008
Greinileg vísbending
Bergmálað úr borunni #19
Eins og flestir hafa orðið varir við, hefur skæður flensufaraldur geysað hérlendis um nokkurra vikna skeið. Um er að ræða þrjá stofna inflúensu; influensus standardis sem er sú sem kemur á hverju ári, influensus stundumis kemur ekki árlega en af og til, að lokum er það hin skæða influensus terribilis. Sú síðastnefnda stakk sér niður hér um miðjan febrúar.
Landlæknir segir erfitt að segja til með nákvæmni um útbreiðslu og þróun flensufaraldra. Helst megi styðjast við fjölda sjúkrahúsainnlagna til að mæla þróunina og síðan á hvaða sjúkrahús innlagnir verða, til að sjá útbreiðsluna. Eins geri embættið út 'agenta' hér og þar í atvinnulífinu sem afli upplýsinga um fjölda veikindatilkynninga starfsfólks. Þó séu þær tölur ekki nægilega nákvæmar. Sérstaklega ekki á mánudögum.
Þó er ein greinileg vísbending um að flensan sé nú í rénun segir landlæknir. Hún Ragnheiður Ragnarsdóttir, húsfreyja á Ytri Brekku, verður eiginlega aldrei veik. Nú hinsvegar fékk hún flensuna, en er búin að ná sér. Það er greinilegt merki þegar Ranka gamla hefur náð sér. segir landlæknir að lokum.
![]() |
Flensufaraldur hefur náð hámarki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 17. apríl 2008
Er rétt að flytja inn kjöt?
Bergmálað úr borunni #18
Fyrrverandi landbúnaðarráðherra, gagnrýnir núverandi landbúnaðarráðherra harðlega fyrir að ætla að leyfa innflutning á holdi dauðra dýra, eins og hann kallar það. Þykir honum það ekki verjandi að láta ódýra erlenda framleiðslu flæða hér inn á markaðinn og skapa hér verðlagsóvissu. Telur hann að slík skyndileg lækkun verðs á kjöti muni skapa geggjun hjá þjóðinni og atvinnulíf muni fara úr skorðum því enginn mæti til vinnu meðan allir hamstri í Bónus. Bændur og búalið muni drepast úr hor þar sem þeir kunni ekki að bregðast við þessu, ss með að auka útflutning. Þeir hafi aldrei verið í þesslags aðstæðum fyrr og þurfi aðlögunartíma. Einnig telur fv. landbúnaðarráðherra að sjúkdómahætta muni fylgja þessu ódýra innflutta kjöti. Hætta á mun óvandaðri og ódýrari sjúkdómum en nú þekkist.
Sitjandi landbúnaðarráðherra vísar þessu á bug. Þjóðin hafi nýverið sýnt að hún geti höndlað tiltölulega þokkalega skyndilega verðlækkun í Bónus, án þess að valda sér miklum skaða. Eins hafi bændur sýnt að þeir geti vissulega, með smá aðstoð, tekist á við hvers kyns mótbyr. Einnig bendir ráðherra á að innflutt majónes hafi aldrei átt roð í Gunnars majónes og innfluttar grænar baunir komist ekki í hálfkvisti við ORA grænar. Eins megi benda á vinsældir íslenskrar kexframleiðslu. Hvað varði sjúkdóma, segist ráðherra ekki skilja þann ótta. Íslenskar kýr og kindur muni hvort eð er aldrei leggja sér þetta innflutta kjöt til munns, þar sem þær eru jurtaætur.
![]() |
Segir landbúnaði og neytendum kunni að vera ógnað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |